|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
01.01.2012 11:20Gleðilegt nýtt ár!Gamlársdagur var kvaddur á flugvellinum, venju samkvæmt. Þó nokkur fjöldi kom í kaffi og nýbakaðar vöflur með rjóma. Brenna sveitarfélagsins var aðeins steinsnar frá flugstöðinni og myndaðist skemmtileg stemming í krignum það. Nokkrar myndir voru teknar og eru í albúminu. ![]() Skrifað af Þóri Tryggvasyni 29.12.2011 23:11GamlársdagskaffiStjórn Flugklúbbs Selfoss er það sérstaklega ljúft að bjóða félögum í Flugklúbbi Selfoss og öðru flugáhugafólki í síðdegiskaffi í flugstöðinni okkar á Selfossflugvelli, á gamlársdag kl 15:30. Vakin er athygli á því að árleg brenna verður haldin kl 16:15 á flugvallarsvæðinu (ef veður leyfir) og er því upplagt að slá 2 flugur í einu höggi, ylja sér á kaffibolla með félögunum og njóta svo brennunnar í framhaldinu. Vonumst til að sjá sem flesta á flugvellinum, enda upplagt að ræða þá, atburði ársins sem standa uppúr. Fyrir hönd stjórnar Þórir Tryggvason & Helgi Sigurðsson Skrifað af Þóri Tryggvasyni 27.12.2011 18:48Annáll 2011Hér verður tekinn saman stuttur annáll fyrir árið sem senn er á enda. Hann er ekki tæmandi og verður stikklað á því helsta. Að venju var haldinn áramóta gleði á gamlársdag sem var vel heppnuð að þessu sinni, 17 flugvélar fóru um flugvöllinn og margt var um manninn í flugstöðinni.
Þann 7. janúar lauk einn félagi okkar í klúbbnum, Gauti Sigurðsson við línuþjálfun á 747-400, en það var einmitt annar félagi okkar Jón Grímsson sem sá um þjálfunina í því. Er Gauti því orðinn fullgildur í framsætið á þessa gerð flugvéla, glæsilegur áfangi hjá honum. Aðalfundur var haldinn, venju samkvæmt þann 24.mars í húsnæði Set á Selfossi. Nýr inní stjórn kom Walter Ehrat, í stað Jóhanns Bjarnasonar sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi setu. Líflegar umræður urðu á fundinum, þar sem ljósamál á flugbrautum bar hæst á góma, er skemmst frá því að segja að örlítil hreyfing er á því máli eins og staðan er í dag og ekki er útilokað að hægt verði að taka ljósabúnað aftur í notkun að hluta til eða öllu leiti von bráðar, meira um það síðar.
Í lok maí, gaf Flugmálastjórn Íslands út undanþágu vegna yfirvofandi reglugerðarbreytinga sem snúa að viðhaldsmálum einkaflugvéla á Íslandi. Mun það vafalaust létta mönnum róðurinn við rekstur flugvéla sinna, amk eitthvað áfram. 17. júní er orðinn ómissandi póstur í starfi klúbbsins. Á þessum degi er orðinn föst hefð í huga bæjarbúa að líta viðá flugvellinum, en Flugklúbbur Selfoss var með opið hús og flugvélar félagsmanna voru til sýnis. Þá var flugminjasafnið í skýli 1 opið og Norðurflug bauð upp á útsýnisflug með þyrlu yfir bæinn. Margir nýttu sér tækifærið og var þyrlan í stöðugum ferðum í rúmlega 3 klukkustundir.
Flughátíðin í Múlakoti um verslunarmannahelgina, skipar orðið fastan sess hjá mörgum í klúbbnum, var það engin undantekning þetta árið en þó nokkrir félagsmenn mættu á staðinn með fjölskyldur sínar og héldu uppi heiðri klúbbsins. Skemmtileg hefð sem er vonandi komin til að vera.
Þann 8. ágúst var svo komið að stóra deginum hjá þeim Kára og Gunnari, en flugvélin, TF-GIN, sem þeir hafa verið með í uppgerð síðastliðin 14 ár, fór í loftið með glæsibrag. Um gríðarlega velheppnaða endurbyggingu er að ræða hjá þeim félögum sem mikill sómi er að. Þorfinnur Snorrason sá um reynsluflugið og fylgdist hópur góðra félaga með.
Wings´n Wheels var haldin í annað skiptið á Tungubakkaflugvelli, 3 vélar frá Selfossi kíktu þangað TF-FIM, TF-GJA og TF-170. Skemmtilegt uppátæki hjá þeim mosó mönnum.
Pétursbikarinn á orðið fastan stað á haustdögum, það vildi þó þannig til núna að veðurguðirnir voru ekki samvinnuþýðir og þurfti ítrekað að fresta keppninni. Stjórn klúbbsins var þó staðráðin í að halda keppnina og fór svo að lokum að hún var haldin 14. september. 9 keppendur tóku þátt að þessu sinni og voru aðstæður ákjósanlegar. Þorsteinn Magnússon sigraði með aðeins 66 refsistig, en þetta mun vera í 5. skiptið sem hann sigrar í þessari keppni. Glæsilegur árangur hjá Þorsteini.
Árshátíð klúbbsins er ómissandi á haustmánuðum, var hún haldin í flugskýli nr 1 þann 30. september. Óli Olesen félagi okkar sá um að enginn færi svangur heim og snaraði fram kræsingum að venju. Ræðumaður kvöldsins var Hörður Guðmundsson sem er kenndur er við Flugfélagið Ernir. Síðan voru verðlaunaafhendingar og annað léttmeti. Vel heppnað kvöld þar sem allir skemmtu sér vel.
Tæknimál á flugvellinum hafa gengið aðeins brösuglega þetta árið, en nú er unnið að því að skipta út biluðum vefmyndavélum og er sú vinna í fullum gangi. (nánar kynnt síðar). Braut 15/33 ásamt flughlaðinu og nánasta umhverfi fékk sinn slátt, með góðri aðstoð þeirra sem lögðu til tæki og vinnu. Kann klúbburinn þeim sínar bestu þakkir fyrir. Nokkrar flugvélar klúbbfélaga hafa ýmist fengið nýja hluthafa eða nýja eigendur. TF-GJA fékk 2 nýja hluthafa á árinu og TF-170 fékk nýjan eiganda á haustmánuðum. Er gaman að sjá að ennþá sé gróska í flugvélaviðskiptum. Flugstöðin okkar á enn undir högg að sækja vegna vatnsleka og er þeim viðgerðum ekki lokið sem þarf að ráðast í. Vonast er til að málin komist á skrið með hækkandi sól. Veröndin fyrir utan húsið skemmdist töluvert í óveðri sem gekk yfir um síðustu áramót og er lagfæringum lokið á henni. Verið er að taka miðstöðvarkerfi hússins í gegn þessa dagana, en 2 ofnar voru orðnir lekir og flestir ofnakranar stirðir eða fastir. Ljóst er að vinna þarf endurbætur jöfnum höndum til að halda flugstöðinni okkar í sem bestu ástandi. Stefnt er að því að halda í þá hefð að hittast á flugvellinum á gamlársdag og ef veður leyfir, þá verður tekinn hringur um loftin. Er það von stjórnar að félagar og gestir fjölmenni og kveðji árið með stæl.
Fyrir hönd stjórnar Flugklúbbs Selfoss Þórir Tryggvason Skrifað af Þóri Tryggvasyni 24.12.2011 18:00JólakveðjaFlugklúbbur Selfoss sendir öllum félögum, fjölskyldum þeirra og öðru flugáhugafólki, hugheilar jólakveðjur, með ósk um gæfuríkt komandi ár. Skrifað af Þóri Tryggvasyni 02.10.2011 13:19Árshátíð lokið Þá er árshátíðinni lokið þetta árið, en óhætt er að segja að vel hafi tekist til. Um 50 manns komu saman og áttu góða kvöldstund. Ræðumaður kvöldsins Hörður Guðmundsson sagði frá ferli sínum og ýmsum uppákomum, Guðjón Óskar trúbador sá um tónlistina, en hápunktur kvöldsins var að venju, verðlauna afhendingar. Þorsteinn Magnússon tók við Pétursbikarnum en hann sigraði lendingarkeppnina þetta árið. Síðan var flugmaður ársins tilnefndur, en þeir voru 2 þetta árið, Gunnar Jónsson og Kári Jónsson, en þeir voru að ljúka við uppgerð á TF-GIN eftir 14 ára vinnu. Myndir frá kvöldinu eru komnar í myndasafnið. ![]() Ræðumaður kvöldsins, Hörður Guðmundsson ![]() Flugmenn ársins þeir Gunnar og Kári ![]() Handhafi Pétursbikarsins þetta árið, Þorsteinn Magnússon Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 19 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 384 Gestir í gær: 133 Samtals flettingar: 471478 Samtals gestir: 103146 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 02:52:00 |