|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
|
Pétursbikarinn
Pétursbikarinn
Árleg lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss, Pétursbikarinn, er haldin á Selfossflugvelli seinni part sumars ár hvert. Keppnin er haldin til minningar um Pétur Sigvaldason sem var gestur á stofnfundi flugklúbbsins þann 16. maí 1974, en hann var þá ritari Vélflugfélags Íslands, VFFÍ. Á heimasíðu Flugklúbbs Selfoss, undir "Sagan", má sjá mynd frá stofnfundinum og er Pétur þar annar frá hægri. Á fundinum gaf Pétur 5.000 krónur til flugvallargerðar á Selfossi og var það fyrsta fjárframlagið til Selfossflugvallar. Pétur fórst í flugslysi tæpum þremur vikum síðar, í Svínadal í Dölum, 2. júní 1974.
Gunnar Þorvaldsson félagi í Flugklúbbi Selfoss og kona hans gáfu Pétursbikarinn til minningar um Pétur Sigvaldason árið 1985.
Lendingarkeppni felst í því að flugmenn keppa í lendingum á flugvélum sínum. Hver flugmaður tekur 4 lendingar:
Flugmenn fá síðan refsistig skv. alþjóðlegum reglum um lendingakeppni og því færri sem þeir lenda nær réttum lendingarstað. Sá sigrar sem fær fæst refsistig.
Flugmenn vita að í flugtaki reynir mest á flugvélina en í lendingunni reynir mest á flugmanninn. Lendingarkeppni er því hæfniskeppni flugmanna þó auðvitað skipti líka máli að hafa heppnina með sér. Flugmenn taka þátt í lendingarkeppni sér og öðrum til skemmtunar og til að þjálfa sig í öguðum vinnubrögðum.
Pétursbikarinn hefur verið haldinn á Selfossflugvelli frá árinu 1985.
Sigurvegarar í Pétursbikarnum frá upphafi: 1985 Ragnar J. Ragnarsson 1986 Ragnar J. Ragnarsson 1987 Jóhannes Örn Jóhannesson 1988 Orri Eiríksson 1989 Orri Eiríksson 1990 Ágúst Ögmundsson 1991 Sigurður Karlsson Flugklúbbi Selfoss 1992 Guðmundur Jónsson Flugklúbbi Selfoss 1993 Hörður Guðlaugsson 1994 Haukur Snorrason 1995 Guðmundur Ásgeirsson 1996 Ekki haldið 1997 Ingólfur Jónsson 1998 Þorsteinn Kristinsson 1999 Maggnús Víkingur Grímsson 2000 Sigurður Karlsson TF-HAL 87 refsistig Flugklúbbi Selfoss 2001 Þorsteinn Magnússon TF-EOS 55 refsistig Flugklúbbi Selfoss 2002 Þorsteinn Magnússon TF-EOS 77 refsisitg Flugklúbbi Selfoss 2003 Björn Ásbjörnsson 2004 Þorsteinn Magnússon TF-EOS Flugklúbbi Selfoss 2005 Sigurður Georgssson 2006 Snorri B Jónsson Flugklúbbi Mosfellsbæjar 2007 Þorsteinn Magnússon TF-EOS 78 refsistig Flugklúbbi Selfoss 2008 Hjörtur Þór Hauksson TF-FIM 149 refsistig Flugklúbbi Selfoss Flettingar í dag: 211 Gestir í dag: 120 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474793 Samtals gestir: 104467 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 21:09:23 |