Pétursbikarinn
Pétursbikarinn
Árleg lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss, Pétursbikarinn, er haldin á Selfossflugvelli seinni part sumars ár hvert. Keppnin er haldin til minningar um Pétur Sigvaldason sem var gestur á stofnfundi flugklúbbsins þann 16. maí 1974, en hann var þá ritari Vélflugfélags Íslands, VFFÍ. Á heimasíðu Flugklúbbs Selfoss, undir "Sagan", má sjá mynd frá stofnfundinum og er Pétur þar annar frá hægri. Á fundinum gaf Pétur 5.000 krónur til flugvallargerðar á Selfossi og var það fyrsta fjárframlagið til Selfossflugvallar.
Pétur fórst í flugslysi tæpum þremur vikum síðar, í Svínadal í Dölum, 2. júní 1974.
Gunnar Þorvaldsson félagi í Flugklúbbi Selfoss og kona hans gáfu Pétursbikarinn til minningar um Pétur Sigvaldason árið 1985.
Lendingarkeppni felst í því að flugmenn keppa í lendingum á flugvélum sínum. Hver flugmaður tekur 4 lendingar:
- Floginn umferðarhringur, venjuleg lending, allt leyfilegt.
- Floginn umferðarhringur, dregið af mótor í 1000 feta hæð þvert af áætluðum lendingarstað, ekki leyfilegt að nota mótor eftir það.
- Floginn umferðarhringur, dregið af mótor í 1000 feta hæð þvert af áætluðum lendingarstað, ekki leyfilegt að nota mótor né flapa eftir það.
- Floginn umferðarhringur, hefðbundin lending yfir 2 metra hindrun sem er 50 metra frá núll punkti, aðflugsferill skal vera eðlilegur.
Flugmenn fá síðan refsistig skv. alþjóðlegum reglum um lendingakeppni og því færri sem þeir lenda nær réttum lendingarstað. Sá sigrar sem fær fæst refsistig.
Flugmenn vita að í flugtaki reynir mest á flugvélina en í lendingunni reynir mest á flugmanninn. Lendingarkeppni er því hæfniskeppni flugmanna þó auðvitað skipti líka máli að hafa heppnina með sér. Flugmenn taka þátt í lendingarkeppni sér og öðrum til skemmtunar og til að þjálfa sig í öguðum vinnubrögðum.
Pétursbikarinn hefur verið haldinn á Selfossflugvelli frá árinu 1985.
Sigurvegarar í Pétursbikarnum frá upphafi:
1985 Ragnar J. Ragnarsson
1986 Ragnar J. Ragnarsson
1987 Jóhannes Örn Jóhannesson
1988 Orri Eiríksson
1989 Orri Eiríksson
1990 Ágúst Ögmundsson
1991 Sigurður Karlsson Flugklúbbi Selfoss
1992 Guðmundur Jónsson Flugklúbbi Selfoss
1993 Hörður Guðlaugsson
1994 Haukur Snorrason
1995 Guðmundur Ásgeirsson
1996 Ekki haldið
1997 Ingólfur Jónsson
1998 Þorsteinn Kristinsson
1999 Maggnús Víkingur Grímsson
2000 Sigurður Karlsson TF-HAL Flugklúbbi Selfoss
2001 Þorsteinn Magnússon TF-EOS Flugklúbbi Selfoss
2002 Þorsteinn Magnússon TF-EOS Flugklúbbi Selfoss
2003 Björn Ásbjörnsson
2004 Þorsteinn Magnússon TF-EOS Flugklúbbi Selfoss
2005 Sigurður Georgssson
2006 Snorri B Jónsson Flugklúbbi Mosfellsbæjar
2007 Þorsteinn Magnússon TF-EOS 78 refsistig Flugklúbbi Selfoss
2008 Hjörtur Þór Hauksson TF-FIM 149 refsistig Flugklúbbi Selfoss
2009 Snorri B Jónsson TF-REX 59 refsistig Flugklúbbi Mosfellsbæjar