|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
|
Flugklúbbur Selfoss
Flugklúbbur Selfoss er áhugamannaklúbbur um vöxt og viðgang flugs á Selfossi. Megin viðfangsefni klúbbsins er rekstur Selfossflugvallar, þar með talið flugstöðvarinnar, útleiga á flugskýlum og félagsstarf sem snýst um áhugamál klúbbfélaganna, flug. Félagar í klúbbnum eru rúmlega 100, þar af um 50 sem hafa, eða hafa haft, réttindi til að fljúga flugvélum. Flugvélar í eigu klúbbfélaga eru 13 (apríl 2008) í 6 flugskýlum sem eru á flugvallarsvæðinu. Allir geta gengið í flugklúbbinn og er árgjaldið kr. 3.000,- . Meðal fastra punkta í starfsemi klúbbsins er að bjóða upp á útsýnisflug á 17. júní ár hvert. Árleg lendingarkeppni, Pétursbikarinn, er haldinn síðla sumars og árshátíð er haldin að hausti. Félags- og fræðslufundir eru haldnir öðru hverju yfir veturinn og aðalfundur í apríl. Undanfarin ár hefur mikil óvissa ríkt um framtíð flugvallarins en þeirri óvissu hefur nú verið eytt með staðfestingu á deiliskipulagi af flugvallarsvæðinu og því opnast um leið sá möguleiki að byggja fleiri flugskýli á vallarsvæðinu. Það er skoðun flugklúbbsins að Selfossflugvöllur gegni mikilvægu hlutverki, ekki bara fyrir okkur klúbbfélagana, heldur einnig sem samgöngumannvirki fyrir bæjarfélagið. Með tímanum muni flugvöllurinn skapa möguleika á aukinni þjónustu fyrir bæjarbúa og ferðamenn og annarri atvinnutengdri starfsemi.
Við bjóðum nýja félaga velkomna í Flugklúbb Selfoss.
Helgi Sigurðsson, formaður
Aðsetur Flugklúbbsins er á Selfossflugvelli Sími í Flugstöðvarhúsi er 482-1405 Flettingar í dag: 211 Gestir í dag: 120 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474793 Samtals gestir: 104467 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 21:09:23 |