Flugklúbbur Selfoss
Flugklúbbur Selfoss er áhugamannaklúbbur um vöxt og viðgang flugs á Selfossi. Megin viðfangsefni klúbbsins er rekstur Selfossflugvallar, þar með talið flugstöðvarinnar, útleiga á flugskýlum og félagsstarf sem snýst um áhugamál klúbbfélaganna, flug. Félagar í klúbbnum eru rúmlega 100, þar af um 50 sem hafa, eða hafa haft, réttindi til að fljúga flugvélum. Flugvélar í eigu klúbbfélaga eru 13 (apríl 2008) í 6 flugskýlum sem eru á flugvallarsvæðinu. Allir geta gengið í flugklúbbinn og er árgjaldið kr. 3.000,- . Meðal fastra punkta í starfsemi klúbbsins er að bjóða upp á útsýnisflug á 17. júní ár hvert. Árleg lendingarkeppni, Pétursbikarinn, er haldinn síðla sumars og árshátíð er haldin að hausti. Félags- og fræðslufundir eru haldnir öðru hverju yfir veturinn og aðalfundur í apríl. Undanfarin ár hefur mikil óvissa ríkt um framtíð flugvallarins en þeirri óvissu hefur nú verið eytt með staðfestingu á deiliskipulagi af flugvallarsvæðinu og því opnast um leið sá möguleiki að byggja fleiri flugskýli á vallarsvæðinu. Það er skoðun flugklúbbsins að Selfossflugvöllur gegni mikilvægu hlutverki, ekki bara fyrir okkur klúbbfélagana, heldur einnig sem samgöngumannvirki fyrir bæjarfélagið. Með tímanum muni flugvöllurinn skapa möguleika á aukinni þjónustu fyrir bæjarbúa og ferðamenn og annarri atvinnutengdri starfsemi.
Við bjóðum nýja félaga velkomna í Flugklúbb Selfoss.
Hægt er að gerast félagi með því að smella HÉR
Athugið að fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.
Stjórn Flugklúbbs Selfoss 2009-2010
Helgi Sigurðsson, formaður
Hannes Garðarsson, varaformaður
Þórir Tryggvason, ritari
Jóhann Snorri Bjarnason, gjaldkeri
Hjörtur Þór Hauksson, meðstjórnandi
Frá vinstri: Þórir, Jóhann, Helgi, Hannes og Hjörtur
Aðsetur Flugklúbbsins er á Selfossflugvelli
Sími í Flugstöðvarhúsi er 482-1405