|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|||||||||||||||||
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
|
Selfossflugvöllur Selfossflugvöllur er einkaflugvöllur í eigu Flugklúbbs Selfoss og er opinn allan sólarhringinn fyrir almenna flugumferð í samræmi við reglur sem þar um gilda. Völlurinn var byggður upp af félögum flugklúbbsins og er rekinn af Flugklúbbi Selfoss en Flugmálastjórn Íslands og síðar Flugstoðir ohf hafa lagt fé í uppbyggingu, viðhald og rekstur hans. Flugstöð við völlinn er í eigu Flugklúbbs Selfoss og Flugstoða ohf. Flugskýli á flugvallarsvæðinu eru 5 og hýsa núna 13 flugvélar sem eru í eigu félaga í Flugklúbbi Selfoss (október 2007). Flugvöllurinn er vinsæll viðkomustaður einkaflugmanna og er einnig mikið notaður í tengslum við leiguflug, sérstaklega til Vestmannaeyja.
Brautarljós - ATH Óvirk sem stendur ATH-
Tölulegar upplýsingar
021° 02' 16''W (63.92916667,-21.03777778) Hæð: 45 fet ys Tíðni: 118.1 Mhz NDB stefnuviti: SE397 Sími: 482-1405
Avgas 100LL Veðurupplýsingar: Sjálfvirk veðurstöð er á flugvellinum. Hægt er að sjá þær upplýsingar undir valmyndinni "Veður".
Reglur Sveitarfélagsins Árborgar um takmarkanir við flugumferð um Selfossflugvöll
1. gr. Næturtakmarkanir: Á milli 23:00 og 07:00 eru flugtök bönnuð. Heimilt er að víkja frá þessu í neyðartilvikum og skal það skráð sérstaklega.
2. gr. Takmarkanir á snertilendingum: Snertilendingar eru einungis leyfðar virka daga frá 07:00 til 18:00.
3. gr. Reglur þessar eru settar skv. 9. gr. reglugerðar um hávaða nr. 933/1999, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 478/2003 og öðlast gildi þegar í stað.
Samþykkt í bæjarráði Árborgar 15. nóvember 2007. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri.
Flugkort - AIP upplýsingar:
Rekstraraðili: Flugklúbbur Selfoss, formaður Helgi Sigurðsson, sími: 482 3484 - 896 3406 Leigubílar á Selfossi: Bifreiðastöð Selfoss, sími: 482 3800 Leigubílar Selfossi, sími: 482 3200 Myndir Flettingar í dag: 197 Gestir í dag: 113 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474779 Samtals gestir: 104460 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:51:40 |
||||||||||||||||