|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
31.08.2010 22:04Flugrallý og lendingarkeppni 2010Flugrallý og lendingarkeppni verða haldin laugardaginn 4. september 2010 á Reglurnar og refsistigin er hægt að sækja og lesa á vef FAI GPS tæki verður í hverri keppnisvél sem skráir flugferilinn á hverri sekúndu. Stigin eru reiknuð síðan samkvæmt því. Stig af tveimur af lendingum í lendingarkeppninni eru einnig tekin í heildarstigafjöldann. Keppnin er liðakeppni því í hverri vél er gert ráð fyrir flugmanni og flugleiðsögumanni (Navigator).Keppnin felst í því að keppendur fá upplýsingar um leið sem hefur 10 Keppendur hafa myndir af öllum beygjupunktum og þurfa að merkja hvort myndin sé eða Ágúst Guðmundsson (ag@teigar.net s:897 9882) Ekki er víst að skráningar eftir þennan tíma verði teknar gildar. Áhorfendavæn keppni Keppnin er sérlega áhorfendavæn og notuð er nýjasta tækni til þess. Áhorfendur fylgjast með hverri vél frá byrjun og til loka flugsins. Í samvinnu við SAGASystem á Íslandi ( www.sagasystem.is) verður tæki í hverri flugvél sem sendir staðsetninguna á hverri sekúndu.Staðsetningin er síðan sýnd á stórum skjá í áhorfendasal á Selfossflugvelli. Áhorfendur sjá hvar allar flugvélarnar eru staðsettar á hverjum tíma og geta því fylgst með hvernig þeim gengur í keppninni á leiðinni. Áhorfendur hafa því betri yfirsýn yfir keppnina en keppendur sjálfir. o Tölvureiknað flugplan miðað við þann flugtakstíma og flughraða fyrir viðkomandi keppanda með áætluðum vindstefnu og vindstyrk.o Myndir af beygjupunktum CP1-CP8 í tveim hlutum o Kort af svæðinu sem flogið er um. o Myndir merktar með bókstöfum A til P. o Svarblað til að skila niðurstöðum úr fluginu o Keppendur geta skoðað kort á keppnisstað þar sem punktarnir CP1-CP8 hafa verið merktir inná o Keppendur teikna leiðina á sitt kort (keppendur geta sett inn tímamerki fyrir hverja mínútu á leiðinni) o Flugtak er á ákveðnum tíma (±60sek án refsistiga) o Flogið er yfir SP og síðan alla CP og að lokum FP (reiknaður tími ±2sek án refsistiga fyrir alla punkta miðað við tölvureiknað plan) o Hver punktur er í raun hlið sem er 1,0NM að breidd með punktinn á miðri línunni hornrétt miðað við aðflugsstefnu að punktinum (refsistig ef utan marka) o Fyrir hvern CP punkt er mynd merkt honum. Merkja á svarblað hvort myndin sé rétt eða röng (refsistig fyrir rangt svar). o Ekki má beygja meira en 90° frá beinni flugstefnu milli punkta (refsistig). Það gildir þó ekki í 45sek eftir að farið er yfir punkt (CP) og stefnubreyting er tekin að næsta punkti (CP) o Á leiðinni frá SP að punkti CP4 eru myndir A-H sem keppendur verða að staðsetja rétt á flugleiðinni (fjarlægð í NM frá síðasta CP). Myndirnar eru ekki í réttri röð. (refsistig fyrir rangt staðsetta mynd ef lengra en ±0,5NM frá réttri staðsetningu). o Á leið frá CP4 að FP eru myndir I-P sem keppendur verða að staðsetja með sama hætti (annars refsistig). o Eftir að flogið er yfir FP er lent. o Keppendur hafa síðan 15 mínútur eftir lendingartíma til að ganga frá gögnum (inni í flugvél án samskipta við aðra) sem er þá skilað til mótsstjórnar. o Auk þess tekur mótsstjórn GPS tæki sem sett var í flugvélina á meðan fluginu stóð og les mótsstjórn úr GPS tækinu allt flugið. Flugið er skráð með 1sek fresti. o Síðasti hluti er svo lendingarkeppni (refsistig fyrir lendingar utan ramma eftir fjarlægð frá marki). Dagskrá: 9.00 Kaffi á Selfossflugvelli Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 206 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474788 Samtals gestir: 104466 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01 |