|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
11.08.2010 12:16Framkvæmdir á vallarsvæðinuÞað er óhætt að segja að hlutirnir séu að gerast á Selfossflugvelli í dag. En 2 framkvæmdir eru í gangi þegar þetta er ritað. Fúsi (TF-GJA) mætti með gröfu og vörubíl snemma morguns og hófst handa við að fjarlægja ristarhliðið við afleggjarann að vellinum, en hliðið hefur þjónað tilgangi sínum dyggilega síðustu árin en ekki er þörf á því lengur, auk þess sem ásýndin batnar til muna á aðkomunni að vellinum. Síðustu 2-3 árin erum við búnir að ræða reglulega við MÍLU varðandi það að fá varanelga símalínu á flugvöllin, en línan sem er fyrir var lögð til bráðabirgða í kringum 1980 og er að mestu leiti ofanjarðar. Nú gerðist loksins einhvað í málinu og verktaki á vegum MÍLU mætti á svæðið í morgnu og hófst handa við skurðmokstur. Gaman er að sjá að uppbyggingin sé hvergi nærri hætt á vallarsvæðinu. Fúsi að fjarlægja hliðið, hjá honum stendur starfsmaður frá Vegagerðinni. Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 206 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474788 Samtals gestir: 104466 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01 |