|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
02.08.2010 21:53Múlakot að bakiFlughátíðin í Múlakoti er að baki þetta árið. Flugkoman er árleg samkoma sem Félag íslenskra einkaflugmanna stendur fyrir. Hátíðin var vel sótt í ár þrátt fyrir slæmt flugveður frá Reykjavík á laugardeginum. Fimmtán þátttakendur kepptu í spennandi lendingakeppni TM á sunnudeginum og þar bar Erling Jóhannsson sigur úr býtum á vél sinni, TF-FFC, sem er Beechcraft Skipper árgerð 1979. Mikill fjöldi flugáhugafólks kom saman, ýmist í tjöldum, tjaldvögnum, húsbílum, hjólhýsum, fellihýsum nú eða sumarbústaðnum. Á laugardeginum var hveitipokakast fyrir börnin, þar sem markmiðið var að hitta í mark úr flugvél, ásamt pokahlaupi sem reyndist geysi spennandi hjá yngri kynslóðinni. Ljóst er að hátíðin er að festa sig í sessi, enda öll aðstaða hin besta. Þó nokur hópur fólks kom frá Flugklúbbi Selfoss, og er mikil tilhlökkun nú þegar fyrir næsta ári. Fullt af myndum eru komnar í albúmið. ![]() ![]() ![]() Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 206 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474788 Samtals gestir: 104466 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01 |