|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
29.07.2010 12:52Athygli vakin á.....Rétt er að benda sérstaklega flugmönnum á 2 NOTAM sem gefin hafa verið út: C-NOTAM no. 0096/10 Vestmannaeyjar BIVMNOTAM nr. C 0096/10A) Staður: BIVM Vestmennaeyjar B) Gildir frá: 30. júlí 2010 kl: 08:00 C) Gildir til: 02. ágúst 2010 kl: 23:59 D) E) Flugumferðarstjórn verður í Vestmannaeyjum á ofangreindu tímabili. Á sama tíma breytist BIVM Vallarsvið (TIZ) í BIVM Flugstjórnarsvið (CTR) sjá AIP BIVM 2.17 og verður loftrýmið flokkur D. Kallmerki í fjarskiptum er Vestmannaeyjar flugturn. Flugstjórnarþjónusta verður veitt í flugstjórnarsviði Vestmannaeyja, bæði á þjónustutíma flugvallarins og vegna útkalla. Sérlegt sjónflug verður aðeins heimilað fjölhreyfla loftförum. Skyggni skal vera að lágmarki 5 km til að heimila sérlegt sjónflug. Til að flýta fyrir umferð verða, ef þurfa þykir, notaðar flugleiðir samkvæmt korti AIP AD BIVM 2.24.7.1-1 og er flugmönnum bent á að kynna sér það. Blindflugsloftför skulu óska eftir heimild til gangsetningar frá flugturni. Þjónustutími Vestmannaeyjaflugvallar á þessu tímabili er eftirfarandi. Fimmtud. 29.07 frá 08:00 til 23:00 AFIS Föstudag. 30.07 frá 08:00 til 23:00 ATC Laugardag 31.07 frá 08:00 til 21:00 ATC Sunnudag 01.08 frá 08:00 til 21:00 ATC Mánudag 02.08 frá 06:00 til 23:00 ATC Ekki er heimilt að lenda á flugvellinum utan þjónustutíma nema að fengnu leyfi. Undanþágubeiðnir verða afgreiddar í símum 481 1969 og 481 1209. Lendingarstaðir þyrlna eru flugbrautir. Umferð á hlaði verður stýrt eftir þörfum og er tíðni hlaðstjórnar 119,5 MHz. Flugturn mun láta loftför vita þegar hlaðstjórn er virk og ber flugmönnum að hlíta fyrirmælum um akstur, staðsetningu og gangsetningu loftfara. Sérstaklega skal tekið fram að óheimilt verður að gangsetja loftför án heimildar umferðarstjórnanda á flughlaði. Vegna mikils umferðarálags og þrengsla eru flugmenn beðnir að sýna gangandi farþegum á flugvallasvæðinu tillitsemi. Flugmönnum eins hreyfils loftfara er bent á að velja sér flughæð miðað við svifgetu loftfars á flugleiðinni milla lands og Vestmannaeyja þannig að hægt sé að ná landi til nauðlendingar ef hreyfill stöðvast. Flugmönnum er bent á að gæta að hleðslu loftfara sinna og vera tilbúnir að sýna fram á að hleðsla þeirra sé innan marka og hafa farþegalista á öruggum stað. Ekki er búist við að takmarka þurfi flutningaflug flugrekanda til og frá Vestmannaeyjum en Flugturn mun takmarka flug einka-og kennsluflugvéla ef þörf krefur. Loftför í einkaflugi sem hyggjast hafa viðdvöl á flugvellinum í Vestmannaeyjum skulu hafa samband við flugumferðarstjórn flugvallarins til að fá upplýsingar hvar leggja skuli loftförum. Einnig skulu þessir aðilar gefa upp nafn og símanúmer svo hægt verði að ná í þá á meðan þeir dvelja í Vestmannaeyjum. A-NOTAM nr. 0100/10 Múlakot BIMK flughátíð. NOTAM nr. C 0100/10 Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 206 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474788 Samtals gestir: 104466 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01 |