|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
28.07.2010 09:53Frétt af Sunnlenska.isVegfarendur um Eyrarbakkaveg ráku upp stór augu í gærkvöldi þegar þrjár þyrlur flugu yfir Flóann og lentu á Selfossflugvelli. Þarna voru á ferðinni þyrlur frá Norðurflugi með erlenda ferðamenn í reisu um Suðurland. Þyrlurnar lentu á Stokkseyri þar sem hópurinn fór út að borða á Við Fjöruborðið og millilentu svo á Selfossflugvelli til að taka bensín. Birgir Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, segir mikið að gera við að þjónusta ferðamenn um þyrluflug en fyrirtækið býður upp á skoðunarferðir um Suðurland og nánast hvert á land sem er. "Við erum mest á suðursvæðinu og bjóðum upp á mismunandi pakkaferðir sem eru mjög vinsælar hjá erlendum ferðamönnum," segir Birgir. "Vinsæl ferð fyrir svona hóp er t.d. að fljúga á Langjökul, þaðan á Gullfoss og Geysi og síðan inn í Landmannalaugar og Þórsmörk með viðkomu á gosstöðvunum í Eyjafjallajökli. Síðan er hægt að lenda hvar sem er til að borða, t.d. á Hótel Rangá, eða þá á Stokkseyri eins og við gerðum í gær." "Fólk upplifir þetta sérstaklega í gosfluginu hjá okkur. Þar höfum við flogið yfir jökulinn og síðan niður Gígjökul þar sem landslagið er ólýsanlegt eftir gosið. Það er alveg sérstök nálgun að skoða það í þyrlu og upplifunin verður varla áþreifanlegri." Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 206 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474788 Samtals gestir: 104466 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01 |