|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2010 Júlí30.07.2010 16:20Flugbraut 05/23 lokuð!Eftirfarandi Notam var að koma inn frá Flugstoðum sem snýr beint að vellinum okkar á Selfossi: C-NOTAM nr. 0111/10 Selfoss BISF Br. 05/23.NOTAM nr. C 0111/10 C-NOTAM nr. 0112/10 Selfoss BISF fuglar.NOTAM nr. C 0112/10 Skrifað af Þóri Tryggvasyni 29.07.2010 12:52Athygli vakin á.....Rétt er að benda sérstaklega flugmönnum á 2 NOTAM sem gefin hafa verið út: C-NOTAM no. 0096/10 Vestmannaeyjar BIVMNOTAM nr. C 0096/10A) Staður: BIVM Vestmennaeyjar B) Gildir frá: 30. júlí 2010 kl: 08:00 C) Gildir til: 02. ágúst 2010 kl: 23:59 D) E) Flugumferðarstjórn verður í Vestmannaeyjum á ofangreindu tímabili. Á sama tíma breytist BIVM Vallarsvið (TIZ) í BIVM Flugstjórnarsvið (CTR) sjá AIP BIVM 2.17 og verður loftrýmið flokkur D. Kallmerki í fjarskiptum er Vestmannaeyjar flugturn. Flugstjórnarþjónusta verður veitt í flugstjórnarsviði Vestmannaeyja, bæði á þjónustutíma flugvallarins og vegna útkalla. Sérlegt sjónflug verður aðeins heimilað fjölhreyfla loftförum. Skyggni skal vera að lágmarki 5 km til að heimila sérlegt sjónflug. Til að flýta fyrir umferð verða, ef þurfa þykir, notaðar flugleiðir samkvæmt korti AIP AD BIVM 2.24.7.1-1 og er flugmönnum bent á að kynna sér það. Blindflugsloftför skulu óska eftir heimild til gangsetningar frá flugturni. Þjónustutími Vestmannaeyjaflugvallar á þessu tímabili er eftirfarandi. Fimmtud. 29.07 frá 08:00 til 23:00 AFIS Föstudag. 30.07 frá 08:00 til 23:00 ATC Laugardag 31.07 frá 08:00 til 21:00 ATC Sunnudag 01.08 frá 08:00 til 21:00 ATC Mánudag 02.08 frá 06:00 til 23:00 ATC Ekki er heimilt að lenda á flugvellinum utan þjónustutíma nema að fengnu leyfi. Undanþágubeiðnir verða afgreiddar í símum 481 1969 og 481 1209. Lendingarstaðir þyrlna eru flugbrautir. Umferð á hlaði verður stýrt eftir þörfum og er tíðni hlaðstjórnar 119,5 MHz. Flugturn mun láta loftför vita þegar hlaðstjórn er virk og ber flugmönnum að hlíta fyrirmælum um akstur, staðsetningu og gangsetningu loftfara. Sérstaklega skal tekið fram að óheimilt verður að gangsetja loftför án heimildar umferðarstjórnanda á flughlaði. Vegna mikils umferðarálags og þrengsla eru flugmenn beðnir að sýna gangandi farþegum á flugvallasvæðinu tillitsemi. Flugmönnum eins hreyfils loftfara er bent á að velja sér flughæð miðað við svifgetu loftfars á flugleiðinni milla lands og Vestmannaeyja þannig að hægt sé að ná landi til nauðlendingar ef hreyfill stöðvast. Flugmönnum er bent á að gæta að hleðslu loftfara sinna og vera tilbúnir að sýna fram á að hleðsla þeirra sé innan marka og hafa farþegalista á öruggum stað. Ekki er búist við að takmarka þurfi flutningaflug flugrekanda til og frá Vestmannaeyjum en Flugturn mun takmarka flug einka-og kennsluflugvéla ef þörf krefur. Loftför í einkaflugi sem hyggjast hafa viðdvöl á flugvellinum í Vestmannaeyjum skulu hafa samband við flugumferðarstjórn flugvallarins til að fá upplýsingar hvar leggja skuli loftförum. Einnig skulu þessir aðilar gefa upp nafn og símanúmer svo hægt verði að ná í þá á meðan þeir dvelja í Vestmannaeyjum. A-NOTAM nr. 0100/10 Múlakot BIMK flughátíð. NOTAM nr. C 0100/10 Skrifað af Þóri Tryggvasyni 28.07.2010 09:53Frétt af Sunnlenska.isVegfarendur um Eyrarbakkaveg ráku upp stór augu í gærkvöldi þegar þrjár þyrlur flugu yfir Flóann og lentu á Selfossflugvelli. Þarna voru á ferðinni þyrlur frá Norðurflugi með erlenda ferðamenn í reisu um Suðurland. Þyrlurnar lentu á Stokkseyri þar sem hópurinn fór út að borða á Við Fjöruborðið og millilentu svo á Selfossflugvelli til að taka bensín. Birgir Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, segir mikið að gera við að þjónusta ferðamenn um þyrluflug en fyrirtækið býður upp á skoðunarferðir um Suðurland og nánast hvert á land sem er. "Við erum mest á suðursvæðinu og bjóðum upp á mismunandi pakkaferðir sem eru mjög vinsælar hjá erlendum ferðamönnum," segir Birgir. "Vinsæl ferð fyrir svona hóp er t.d. að fljúga á Langjökul, þaðan á Gullfoss og Geysi og síðan inn í Landmannalaugar og Þórsmörk með viðkomu á gosstöðvunum í Eyjafjallajökli. Síðan er hægt að lenda hvar sem er til að borða, t.d. á Hótel Rangá, eða þá á Stokkseyri eins og við gerðum í gær." "Fólk upplifir þetta sérstaklega í gosfluginu hjá okkur. Þar höfum við flogið yfir jökulinn og síðan niður Gígjökul þar sem landslagið er ólýsanlegt eftir gosið. Það er alveg sérstök nálgun að skoða það í þyrlu og upplifunin verður varla áþreifanlegri." Skrifað af Þóri Tryggvasyni 16.07.2010 12:04FlúðirRétt er að vekja athygli á eftirfarandi NOTAM sem gildir fyrir flugvöllinn á Flúðum: 01.07.2010C-NOTAM nr. 0088/10 Flúðir BIFL.NOTAM nr. C 0088/10 Skrifað af Þóri Tryggvasyni 07.07.2010 12:10Nóg að snúastÞað verður í nógu að snúast hjá flugáhugafólki næstu helgarnar, meðal annars: Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 200 Gestir í dag: 115 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474782 Samtals gestir: 104462 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31 |