Flugklúbbur Selfoss

1974

Vafraðu um


Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar

Færslur: 2010 Júní

30.06.2010 21:28

C-NOTAM no. 0087/10 Selfoss BISF fugla ger.

Rétt er að benda flugmönnum sem leið eiga um Selfossflugvöll sérstaklega á eftirfarandi NOTAM:

NOTAM nr. C 0087/10
A) Staður: Selfoss BISF
B) Gildir frá: 30. júní 2010 kl. 12:27
C) Gildir til: 31. júlí 2010 kl. 15:00
D)
E) Varað er við hættu af fuglum sérstaklega suðvestur af brautarenda 05.

Málið snýst um mikið fugla ger sem sækir að braut 05 þar sem sorp umstöflun á sér stað í aðeins 100 mtr fjarlægð.   Á "milli máltíða"  situr oft mikill fugl á brautinni sjálfri og geta verið 100-200 mávar þar samtímis.    Verið er að skoða málið mjög alvarlega af hálfu Flugklúbbs Selfoss í samráði við bæjaryfirvöld, Heilbrigðiseftirlitið og Sorpstöð Suðurlands.


                    Þetta er það sem málið snýst um, algörlega ólíðandi slysagildra við Flugvöll.

17.06.2010 18:42

17. júní 2010

Árlegt útsýnisflug Flugklúbbs Selfoss var í dag, á sjálfan þjóðhátíðardaginn.  Veðrið lék við bæjarbúa líkt og síðustu ár og nýttu 120 manns tækifærið og fóru í útsýnisflug í 43 ferðum.  Þær flugvélar sem tóku þátt að þessu sinni voru:  TF-GJA, TF-PJE, TF-HAL, TF-EJG.  Óhætt er að segja að gleðin skein úr hverju andliti, jafnt ungum sem öldnum.   Myndir eru komnar í myndaalbúmið og segja meira en mörg orð.


Sleikjóinn stytti biðina eftir fluginu hjá þessum ungu Selfyssingum.


Börkur Brynjarsson bíður spenntur eftir að komast í loftið með TF-GJA


Jónína Kristjánsdóttir að koma úr ferð með TF-HAL.


Skúli Már Gunnarsson á leið í flug með TF-PJE.

13.06.2010 23:47

Flugbraut slegin!

Sláttur er hafinn á Selfossflugvelli þetta sumarið en braut 15/33 var slegin þriðjudaginn 8. júní. Sáð var í brautina sl sumar með þeim frábæra árangri að brautin stendur nú undir nafni sem grasbraut. Flugmenn eru beðnir um að hlífa grasinu eins og hægt er í sumar og nota braut 05/23 alltaf þegar það er hægt.


Sláttumaðurinn að störfum..

02.06.2010 11:16

Nóg framundan...

Flugáhugafólki ætti ekki að þurfa að leiðast þessa dagana, þar sem af nægu er að taka.

Fyrst ber að nefna að fyrri hluti Silfur-Jódel lendingakeppninnar 2010 fer fram fimmtudagskvöldið 3. júní á Tungubakkaflugvelli. Þeir sem ætla að taka þátt mæti ekki seinna en klukkan 19:00.  Öllum flugmönnum er heimil þátttaka og eru menn hvattir til að mæta á staðinn og taka þátt. Athugið að besti árangur úr öðrum hvorum hluta Silfur-Jodelsins telur til úrslita þannig að t.d. er hægt að sigra þó aðeins sé tekið þátt í öðrum hlutanum.  Allir flugáhugamenn eru hvattir til að mæta á staðinn. Einnig vantar ennþá nokkra sjálfboðaliða til að vera línuverðir og fleira slíkt.  Ef ekki verður hægt að halda keppnina fimmtudaginn 3. júní færist keppnin aftur um viku allt þar til hægt verður að halda hana á fimmtudagskvöldi.

Síðan ber að nefna að laugardaginn 5.júní ætlar Flugklúbburinn Hekla að bjóða flugáhugafólki að skoða aðstöðu klúbbsins á Haukadalsmelum á Rangárvöllum (63°58,188´N 19°58,934W).

Haukadalsmelar traffic er 131.0.

Allt flugáhugafólk velkomið, heitt á könninni um kaffileitið.  Er óhætt að hvetja menn sérstaklega til að líta við hjá þeim og skoða stórglæsilega aðstöðu.

Síðast en ekki síst verður flugsýning Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn næsta, 5.júní, við Hótel Loftleiðir. Þar verða sýndar flugvélar af  öllum stærðum og gerðum en á himni verður boðið upp á flugsýningu.  Á meðal þess sem er á dagskrá er fallhlífarstökk, svifflug, flugmódelflug, listflug, hópflug, lágflug, þyrluflug, fisflug, paramótorflug, sýningaratriði frá Landhelgisgæslunni, keppni mili bíls og flugvélar, lending og flugtak farþegaþotu frá Icelandair, auk annarra atriða sem verða auglýst betur þegar nær dregur.
Með sýningunni verður kynnt allt sem tengist flugi og flugrekstri á Íslandi og gefst gestum kostur á að kynna sér og skoða það helsta í þeim málum.
Ekkert kostar á sýninguna en hún er haldin í samstarfi við Icelandair og ISAVIA

Að lokum má minna á að allir eru ávallt velkomnir í heimsókn á Selfossflugvöll....

    Flettingar í dag: 200
    Gestir í dag: 115
    Flettingar í gær: 331
    Gestir í gær: 151
    Samtals flettingar: 474782
    Samtals gestir: 104462
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31