|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2010 Mars12.03.2010 22:24Aðalfundur 2010Aðalfundur Flugklúbbs Selfoss 2010 verður haldinn í húsakynnum SET hf. á Selfossi laugardaginn 10. apríl n.k. kl. 11:00. Að fundinum loknum verður boðið upp á hádegisverð og síðan förum við í hópferð til félaga okkar í Forsæti, Alberts og Ólafs. Þar skoðum við listasafn, flugskýli og gamlar og nýjar flugvélar þeirra bræðra. Takið daginn frá, nánari upplýsingar þegar nær dregur, Stjórnin. Skrifað af Þóri Tryggvasyni 03.03.2010 23:11Kynning frá KeiliKeilir býður uppá nám í flugi fyrir Sunnlendinga þannig að þeir geti tekið það að öllu leyti frá Selfossi.
Námið er skipulagt þannig að nemendur taka bóklega hlutann í gegnum fjarnám heima hjá sér en Keilir mun koma með sínar glænýju hátæknivélar á Selfoss fyrir verklegu kennsluna ef næg þátttaka fæst. Flugvélakostur Keilis er glænýr og búinn fullkomnustu tækni sem þekkist í slíkum vélum. Þær verða til sýnis á Selfossflugvelli fimmtudaginn 4. mars kl. 10:30 - 13:00. Heimsóknin er í tilefni af skólakynningu sem fram fer í Fjölbrautaskóla Suðurlands en þar verða fulltrúar Keilis sem munu kynna allar námsbrautir Keilis. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Sigurðsson
Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 206 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474788 Samtals gestir: 104466 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01 |