Flugklúbbur Selfoss

1974

Vafraðu um


Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar

Færslur: 2010 Janúar

19.01.2010 22:01

Afþreying

Þótt þessi vetur sé harla óvenjulegur, amk enn sem komið er, varðandi veðurfar, þá er samt birtutími hvers dags í styttri kantinum.  Þess vegna er um að gera að finna sér einhvað til að stytta sér stundir yfir þar til dagurinn verður lengri.  Vefnum hafa borist nokkrir skemmtilegir tenglar sem vert er að segja sérstaklega frá.  Fyrst ber að nefna vef sem heitir www.flightradar24.com   en þar má fylgjast í rauntíma með flugumferð yfir miðevrópu, en hægt er að smella á viðkomandi flugvél og sjá þá bæði flugleið og einnig upplýsingar um td nákvæma staðsetningu, flughæð, hraða, kallmerki og fleira.   www.flightradar24.com




Einnig barst okkur tengill sem má segja að sé svipaður þeim fyrri, nema að hann er um flugumferð í kringum ákveðna flugvelli í henni Ameríku, en sá sem við sýnum hér er JFK Airport.  Athugið að nokkurn tíma getur tekið að hlaða inn myndinni svo sýnið smá þolinmæði. Smellið  HÉR.  Vonandi getur þetta veitt einhverjum flugáhugamanni örlitla afþreyingu.

10.01.2010 21:42

Góður gestur

Þann 8. janúar 2010  leit góður gestur við á Selfossflugvelli, þegar Guðmundur Alfreðsson kom á TF-EOS.  Stefán Jóhannsson tók á móti honum og sá til þess að hann fengi alla þá þjónustu sem nokkur kostur var að veita.  Guðmundur var svo almennilegur að senda okkur nokkrar myndir frá heimsókninni og er einmitt ein þeirra mynd mánaðarins hjá okkur á flugklubbur.is  og fleiri myndir frá Guðmundi má finna í myndaalbúminu.


TF-EOS á Selfossflugvelli þann 8. janúar síðastliðinn.

    Flettingar í dag: 200
    Gestir í dag: 115
    Flettingar í gær: 331
    Gestir í gær: 151
    Samtals flettingar: 474782
    Samtals gestir: 104462
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31