|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2009 Nóvember29.11.2009 18:30Ný bók frá BaldriHinn landsþekkti flugvélaljósmyndari, Baldur Sveinsson, er hvergi nærri af baki dottinn og gefur út sína þriðju bók um flugvélar á Íslandi. Bókin inniheldur alls 160 myndir sem allar eru teknar árið 2009. Bókin sýnir flugvélarnar í stórbrotinni náttúru landsins og ættu allir sannir flugáhugamenn að ná sér í eintak, nú eða að minnsta kosti setja hana í efsta sæti jólagjafa listans því það hefur aldrei verið auðveldara að finna jólagjöf handa flugáhugafólki. d Forsíða bókarinnar, Flugvélar 2009 eftir Baldur Sveinsson Skrifað af Þóri Tryggvasyni 22.11.2009 11:31Farið að kólnaEftir hlýtt en rakt haust, er ljóst að veturinn verður ekki flúinn. Farið er að kólna þó ekki sé komin snjór í byggð. Það sem gerist einnig um þessar mundir, er að í nátturinni okkar leynast lítil dýr sem sækja eins og aðrir í hlýju og mat. Við erum að tala um músagang. Fróðir menn segja að núna geti verið í uppsiglingu mikill músa vetur þar sem síðasti vetur var mildur og sumarið gott. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir flugvélaeigendur og er full ástæða til að benda þeim á að gera ráðstafanir. Hægt er að fá mikið úrval af gildrum og eitri, td í byggingavöruverslunum og hjá meindýraeyðum. Einn þessara staða er á Selfossi og heitir Meindýravarnir Suðurlands. Á heimasíðunni þeirra er einnig að finna mikinn fróðleik um þessi dýr. Ekki þarf að fara mörgum orðum um þann skaða sem ein mús getur valdið í flugvélinni okkar ef hún fær að valsa þar um óáreitt. Rafmagnskaplar, sæti, áklæði og ýmis tækjabúnaður er í stórhættu. Er því full ástæða til að gera sérlega góðar fyrirflugs skoðanir með tilliti til svona dýra. Eitt merkið sem auðveldast er að finna um að mýs hafi verið á svæðinu, er skítur sem þær skilja eftir sig ansi víða. Svört korn í útliti eins og hrísgrjón liggja á víð og dreif. Einnig er mjög mikilvægt að vera ekki með neitt matarkyns um borð sem skilur eftir sig lykt, td samlokubréf úr síðasta flugi osfrv. Ef einhver lumar á góðum húsráðum má sá hinn sami koma því á framfæri á akk@simnet.is Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 200 Gestir í dag: 115 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474782 Samtals gestir: 104462 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31 |