|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2009 Október18.10.2009 12:03Árshátíð að bakiÁrleg árshátið Flugklúbbs Selfoss fór fram síðastliðið föstudagskvöld. Mæting var með besta móti og var hvert sæti vel setið. Einar Elíasson lagði til flugskýli sitt undir hátíðina og var það samdóma álit allra að umgjörðin hefði verið einstök, en Einar hefur unnið ötullega að uppsetningu safns um stríðsárin í Kaldaðarnesi. Veisluþjónusta Óla Olesen sá um kræsingarnar sem voru með besta móti. Gestir minntust tveggja látinna félaga á árinu, þeirra Sigurðar Karlssonar og Gunnars Þorvaldssonar, með því að rísa úr sætum. Félagi okkar og flugkempa í Flugklúbbi Selfoss, Jón Grímsson (TF-HAL) sagði frá því þegar hann ferjaði TF-HAL til landsins, en Jón flaug vélinni tæplega 6000km leið til Íslands fyrir þáverandi eigendur. Var þar á ferðinni skemmtileg saga og vel útfærð, en Jón rakti í máli og myndum ferðasöguna. Verðlaun voru veitt fyrir Pétursbikarinn - lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss en Snorri Jónsson á TF-REX sigraði örugglega.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 12.10.2009 08:32Árshátið 2009
Þátttaka tilkynnist sem fyrst í síma 896 3406 eða á netfang helgi@globaleco.is
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 07.10.2009 12:51Skemmtileg myndböndKjartan Sigurðsson félagi í Flugklúbbi Selfoss og mótordreka flugmaður með meiru, er duglegur með myndavélina í ferðum sínum um landið. Kjartan er með heimasíðu undir myndirnar sínar sem heitir einfaldlega www.photo.is Hann hefur einnig tekið talsvert af myndböndum og hefur hann meðal annars notað til þess mjög fullkomin myndatökubúnað sem festur er á vængendann á drekanum hans. Hann sendi okkur nokkur myndbönd sem hægt er að sjá með því að smella á tenglana hér fyrir neðan, njótið vel. (ath titlar myndbandanna eru Kjartans) Flying over Glacier Lagoon - Vatnajökull - Jökulsárlón Flying over Waterfall Skógafoss Flying Trike through the hole of Dyrholaey island on way to Skaftafell Vatnajökull Glacier in Iceland Flying over Reykjavík Viðey on trike in sunset Gjástykki - Krafla - Leirhnjúkur - Mývatn Flying around Lake Mývatn Ingólfshöfði Puffin island Langisjór Highland Lakagígar Highland Hólmur Kirkjubæjaklaustur Flying over Puffin island Grímsey River Rafting in Hvítá Glacier River Hotel Valholl burning in Thingvellir National park Brimketill - Reykjanesvirkjun Skrifað af Þóri Tryggvasyni 05.10.2009 11:22Pétursbikarinn 2009Árleg lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss - Pétursbikarinn - fór fram sunnudaginn 4. október. Keppnin var hluti af Íslandsmóti í vélflugi sem fram fór sama dag. 10 keppendur tóku þátt í lendingarkeppninni sem var hin besta skemmtun, bæði fyrir keppendur og áhorfendur. Aðstæður til flugs voru mjög góðar, 10-15 hnúta vindur af norðaustri en kalt í veðri. Sigurvegarar að þessu sinni voru: 1. Snorri Jónsson, TF-REX 59 refsistig 2. Guðmundur Guðjónsson, TF-KRA, 91 refsistig 3. Þorsteinn Magnússon, TF-169, 137 refsistig Yfirdómari var Kristbjörn Ólafsson og flugumferðarstjórn allan daginn var í höndum Stefáns Jóhannssonar.
Snorri Jónsson í einni lendingunni sinni á TF-REX Skrifað af Helga Sigurðssyni 02.10.2009 16:25Flugrallý-Tilkynning NÝTT - NÝTT - Við stefnum á Flugrallý sunnudaginn 4. október ásamt lendingarkeppninni.
Dagskrá dagsins er óbreytt.
Við þurfum að fá aftur staðfestingar á þátttöku ykkar (sendið tölvupóst eða hringið í Ágúst eða Hörð).
Einnig eru aðrir keppendur velkomnir og hvattir til að vera með,en þarf að skrá sig í síðasta lagi síðdegis á morgun, laugardag.
Kveðja
Ágúst og Hörður Flugmálafélagi Ísland Þórir Tryggvason Flugklúbbi SelfossÞátttakendur skrái sig með tölvupósti eða símtali við Hörð Sverrisson (hordur@live.com s:898 1894) eða Ágúst Guðmundsson (ag@teigar.net s:897 9882) Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 200 Gestir í dag: 115 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474782 Samtals gestir: 104462 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31 |