Flugklúbbur Selfoss

1974

Vafraðu um


Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar

Færslur: 2009 September

19.09.2009 22:10

Sigurður Karlsson - Minning

   Öflugur liðsmaður og góður félagi í Flugklúbbi Selfoss, Sigurður Karlsson, er látinn langt fyrir aldur fram. Siggi gekk til liðs við klúbbinn árið 1976 og var virkur félagi sem lét að sér kveða allt til dauðadags. Hann var formaður flugklúbbsins árin 1996-2003. Siggi var farsæll og góður einkaflugmaður og sigraði m.a. tvisvar í árlegri lendingarkeppni klúbbsins, Pétursbikarnum, árin 1991 og 2000. Siggi var ásamt tveimur öðrum félögum í klúbbnum sæmdur Gullmerki Flugklúbbs Selfoss á árshátíð klúbbsins 19. september 2008 og var það í fyrsta skiptið í 35 ára sögu klúbbsins sem Gullmerkið var veitt.  Á þann hátt vildum við félagarnir heiðra hann og sína honum þakklæti fyrir fórnfýsi og vel unnin störf í okkar þágu. Hans er sárt saknað en minningin um góðan félaga mun lifa um ókomin ár. 


Sigurður Karlsson við fána, sem hann færði Flugklúbbnum að gjöf.
Myndin er tekin þann 28. febrúar síðastliðin.

18.09.2009 20:48

Sunnudagurinn 20. sept

  
Enn á ný setur veðurútlit strik í reikninginn, með Íslandsmeistaramótið og Pétursbikarinn. Mun ný dagsetning verða tilkynnt hér sem allra fyrst.  Fylgist með.

11.09.2009 20:34

Frestun á Íslandsmeistaramóti

Því miður er staðan þannig þegar þetta er ritað að veðurútlit fyrir morgundaginn er ekki nógu gott. Hefur því verið tekin sú ákvörðun að fresta Íslandsmeistaramótinu í vélflugi ásamt Pétursbikarnum.  Reyna á að halda mótið á sunnudaginn í staðinn.  Fylgist með hér á vefsíðunni fyrir nýjustu upplýsingar.

08.09.2009 15:50

Flugrallý 2009 - Íslandsmót í vélflugi

Flugrallý og lendingarkeppni verða haldin laugardaginn 12. september 2009 á Selfossflugvelli (13. til vara). Keppt er samkvæmt reglum FAI - Alþjóða flugmálafélagsins.


Reglurnar og refsistigin er hægt að sækja og lesa á vef FAI
http://www.fai.org/general_aviation/system/files/gac_airrally2009.pdf

 

Athugið að útbúnar hafa verið sérstakar leiðbeiningar með gögnum til að hægt sé að tileinka sér vinnubrögð sem nýst hafa til Íslandsmeistaratitils.

Sjá www.flugmal.is

 

GPS tæki verður í hverri keppnisvél sem skráir flugferilinn á hverri sekúndu. Stigin eru reiknuð síðan samkvæmt því. Stig af tveimur af lendingum í lendingarkeppninni eru einnig tekin í heildarstigafjöldann.

 

Keppnin er liðakeppni því í hverri vél er gert ráð fyrir flugmanni og flugleiðsögumanni (Navigator).Keppnin felst í því að keppendur fá upplýsingar um leið sem hefur 10 leggi. Fljúga þarf rétt miðað við áætlaðan hraða og eiga keppendur að fara yfir hvern beygjupunkt á ákveðnum tíma en fá refsistig fyrir hverja sekúndu sem er frávik frá flugáætluninni (leyft frávik án refsistiga er ±2 sekúndur).

Keppendur hafa myndir af öllum beygjupunktum og þurfa að merkja hvort myndin sé rétt eða röng. Eins hafa keppendur 8 myndir af fyrrihluta og 8 af seinnihluta leiðarinnar. Keppendur eiga að staðsetja myndirnar á flugferlinum.

Notaðar verða stafrænar loftmyndir í myndahluta keppninnar.

GPS tæki verða sett í hverja vél og skráir tækið staðsetningu á hverri sekúndu. Flugferillinn er síðan skoðaður og notaður til að reikna refsistigin.

Ekki má nota GPS í keppninni og verður límt yfir skjáinn á keppnistækinu sem skráir ferilinn og eins límt yfir skjáinn ef GPS tæki er í flugvélinni.

 

Keppendur eru hvattir til að koma með eigið eða útvega sér að láni Garmin GPS tæki til að nota í keppninni (hand/göngu-tæki henta best). Keppnisstjórn lánar þeim keppendum sem ekki hafa GPS tæki, en best ef keppendur koma með sjálfir.

 

Lendingarkeppni hefst eftir að síðasta vél er lent úr flugleiðsöguhluta keppninnar.

Tvær lendingar úr keppninni um Pétursbikarinn eru notaðar í Íslandsmótinu í vélflugi.

Hægt er að taka þátt í keppninni um Pétursbikarinn án þess að taka þátt í Íslandsmótinu.

 

Þátttakendur skrái sig ekki síðar en á fimmtudag fyrir kl. 20.00 með tölvupósti eða símtali við Hörð Sverrisson (hordur@live.com s:898 1894)

eða Ágúst Guðmundsson (ag@teigar.net s:897 9882)

Ekki er víst að skráningar eftir þennan tíma verði teknar gildar.

 

Áhorfendavæn keppni
Keppnin er sérlega áhorfendavæn og notuð er nýjasta tækni til þess.
Áhorfendur fylgjast með hverri vél frá byrjun og til loka flugsins.
Í samvinnu við SAGASystem á Íslandi (
www.sagasystem.is) verður tæki í hverri flugvél sem sendir staðsetninguna á hverri sekúndu.
Staðsetningin er síðan sýnd á stórum skjá í áhorfendasal á Selfossflugvelli.
Áhorfendur sjá hvar allar flugvélarnar eru staðsettar á hverjum tíma og geta því fylgst með hvernig þeim gengur í keppninni á leiðinni.
Áhorfendur hafa því betri yfirsýn yfir keppnina en keppendur sjálfir.

 

Dagskrá:

  9.00 Kaffi á Selfossflugvelli

10.00 Flugfundur þar sem farið er yfirkeppnina og keppnisreglur með keppendum

11.30 Fyrsta vél í loftið

13.20 Síðasta vél í loftið

13.30 Fyrsta vél kemur til lendingar

14.30 Síðasta vél kemur til lendingar

15.00 Lendingarkeppni og keppni um Pétursbikarinn

16.00 Keppni lokið

 

 Sjá nánar á www.flugmal.is

04.09.2009 09:31

Frestun á Pétursbikar og flugrallý

Sú ákvörðun hefur verið tekin, að fresta bæði Pétursbikarnum og Íslandsmeistaramótinu í flugrallý, sem halda átti á Selfossflugvelli á sunnudaginn.   Ný dagsetning er laugardagurinn 12. september og sunnudagurinn 13. sept til vara.   Takið daginn frá og fjölmennum.  Einnig var áður auglýstri flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli sem átti að vera á morgun laugardag, frestað fram til maí á næsta ári.  Látið þessar upplýsingar berast svo engin fari á mis við breytinguna.

03.09.2009 10:43

90 ár frá upphafi flugs á Íslandi

Í dag 3. september er 90 ára afmæli flugs á Íslandi.
 
Það var 3. september 1919 sem fyrsta flug var flogið á Íslandi, í Vatnsmýrinni í Reykjavík,
en alveg frá upphafi hefur Vatnsmýrin verið vagga flugsins og fóstrað þróun og eflingu flugsins.
 
Fréttir í dagblöðum lýsa tilfinningum fólks á þessum tíma með ljóðrænum hætti þegar það verður vitni af þessum stóra atburði í samgöngumálum Íslands. Allt frá upphafi flugs hefur flug verið Íslendingum afar mikilvægt, enda landið eyja sem er einangruð frá öðrum löndum með miklum hafsvæðum. Einnig hefur dreifð byggð á landinu, notið mikils af fluginu bæði í samgöngum, flutningum og öryggismálum.
Flugið er ævintýri líkast og finna bæði flugmenn og farþegar oft þessa ljóðrænu tilfinningar enn þann dag í dag. Áhugaflugmenn eru úr öllum stéttum þjóðfélagsins og fljúga sér og farþegum til mikillar ánægju.  Eftirfarandi mynd lýsir þessu vel, en hún er af frétt úr Vísi daginn eftir fyrsta flugið, eða þann 4. september fyrir 90 árum.



    Flettingar í dag: 200
    Gestir í dag: 115
    Flettingar í gær: 331
    Gestir í gær: 151
    Samtals flettingar: 474782
    Samtals gestir: 104462
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31