Flugklúbbur Selfoss

1974

Vafraðu um


Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar

Færslur: 2009 Ágúst

28.08.2009 10:13

Pétursbikarinn og flugrallý

Nú styttist hratt í Pétursbikarinn, árlega lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss og Íslandsmeistaramótið í flugrallý en fyrirhugað er að þetta verði þann 6. september næstkomandi. 

20.08.2009 22:41

Breyting á þjónustustigi á Vestmannaeyjaflugvelli frá 24. ágúst nk.

Næstkomandi mánudag eða þann 24. ágúst verður breyting á þjónustustigi flugumferðarþjónustu á Vestmannaeyjaflugvelli. 

Undanfarin ár hefur verið blandað þjónustustig á Vestmanneyjaflugvelli þar sem flugumferðarstjórn eða flugupplýsingaþjónusta (flugradíó) hefur verið notuð, og hefur það farið eftir tíma sólarhrings. 

Frá og með 24. ágúst 2009 verður  flugupplýsingaþjónusta allan sólarhringinn.  Kynning á breytingunum er hægt að sjá hér


                                            Vestmannaeyjaflugvöllur.

08.08.2009 16:40

TF-EOS fær nýja eigendur

Ein af þeim flugvélum sem hefur verið hvað lengst með aðsetur á Selfossflugvelli, fékk nýja eigendur þann 29. júlí síðastliðinn. Hér er verið að tala um TF-EOS sem er af gerðinni Piper PA-28-151 Cherokee Warrior.   Nýjir eigendur eru frá Vestmannaeyjum og heita Guðmundur Alfreðsson og Arnar Richards.  Má segja að hlutirnir hafi gengið nokkuð hratt fyrir sig, en nýjir eigendur fréttu að vélin væri til sölu og voru ekkert að hika við hlutina heldur skelltu sér beint uppá land að skoða hana og leist svo vel á gripinn að 2 dögum seinna komu þeir aftur, keyptu flugvélina og flugu henni til eyja. 


Svona leit EOS út lengst af, en var því næst tekin í gegn og skipt um útlit í framhaldinu.

TF-EOS er smíðuð 1977 en kom ekki til Íslands fyrr en 1979 og þá í gám með annari flugvél.  Var hún skráð í fyrsta skipti hér á landi 31. október 1980. Fyrsti eigandi var Gunnar Jónsson en vélin var svo keypt til Selfoss árið 1981 af þeim Árna Möller, Gunnari Þorvaldssyni, Mogens Thogaard og Jóni Péturssyni.  Frá því 1989 hafa orðið miklar breytingar á eignarhlutum í henni og hafa ýmsir átt hluti, má þar nefna til dæmis Guðna Andreasen bakara, Kára Jónsson (TF-FFK), Kristbjörn Ólafsson, Guðlaug í Arabæ, Þorstein Magnússon sem átti í henni í heil 25 ár, Almar Sigurðsson, Ragnar Pétursson Jón Pál Hilmarsson, Guðna Guðjónsson, Ölver Jónsson og Stefán Jóhannsson ásamt fleirum. TF-EOS hefur átt farsælan feril á Selfossi og er óhætt að segja að þetta sé sú vél sem trúlega flestir Selfyssingar hafi farið í útsýnisflug á, 17. júni ár hvert.
Árið 1983 gerðist það svo að Mogens var í útsýnisflugi og er einungis kominn í 5-600ft frá jörðu eftir flugtak, þegar einn stimpill í mótornum brotnar og mótorinn stöðvast í framhaldinu.  Þá var nauðlending óumflýjanleg og tók Mogens þá ákvörðun að reyna lendingu á Eyrabakkaveginum. Ekki náði hann því en lennti þess í stað á túninu gegnt Haga. Það er skemmst frá því að segja að hún tókst vonum framar og allir sluppu ómeiddir og flugvélin óskemmd þó túnið væri stutt.


Grein úr Dagskránni þar sem tekið var stutt viðtal við Mogens.

Þó EOS hafi ekki verið mikið flogið síðustu ár, þá var hún alltaf með lofthæfniskírteini og ávallt til taks fyrir eigendur sína.
Þessi tegund flugvéla var fyrst kynnt til sögunnar árið 1961 og flaug í fyrsta skipti 14. janúar 1960.  Fékk hún það hlutverk að leysa af hólmi eldri gerðir svo sem Piper Tri Pacer og fleiri. Síðan hafa komið fram ýmsar útfærslur af henni og í  árslok 2004 höfðu verið framleidd yfir 30.000 eintök af þeim.
Flugklúbbur Selfoss óskar nýjum eigendum til hamingju með flugvélina og vonum við að hún reynist vel og komi sem oftast í heimsókn á Selfossflugvöll.


TF-EOS undirbýr flugtak á Selfossflugvelli árið 2008

06.08.2009 23:04

Múlakot að baki

Um síðustu helgi, nánar tiltekið verslunarmannahelgina, var mikil flughátíð í Múlakoti.  Það er Félag Íslenskra einkaflugmanna sem á heiðurinn af þessari samkomu.  Hún stóð frá föstudegi til mánudags og var fjöldinn allur af flugvélum á staðnum ásamt miklum fjölda fólks í tjöldum og öðrum gistihúsum.  Á laugardeginum var haldin bæði lendingarkeppni og hveitipokakast keppni, en hún fólst í því að hitta úr flugvélum litlum poka með hveiti í, inní lítinn hring  á flugbrautinni.  Þetta var gert fyrir yngri kynslóðina og vakti mikla lukku.  Aron Karl Þórisson (11ára) bar sigur úr bítum með kasti úr TF-170 Skyranger og hlaut gull medalíu fyrir.  Hjörtur Þór Hauksson félagi okkar kom, sá og sigraði svo lendingarkeppnina af miklu öryggi og fékk hann veglegan farandbikar frá Tryggingamiðstöðinni, til varðveislu.  Um kvöldið var svo varðeldur með "brekkusöng" og heilmiklum gleðskap.   Mikið af áhugaverðum flugvélum var á svæðinu og má segja að veðrið hafi sjaldan eða aldrei verið betra um þessa helgi.  Útsendari Flugklúbbsins var á svæðinu með fjölskyldu sína og tók talsvert af myndum sem eru í myndaalbúminu.


Þarna eru Monster Pitts Björns Thor og Yak TF-BCW í einu af fjölmörgum yfirflugum.


    Flettingar í dag: 200
    Gestir í dag: 115
    Flettingar í gær: 331
    Gestir í gær: 151
    Samtals flettingar: 474782
    Samtals gestir: 104462
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31