|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2009 Júlí19.07.2009 15:16Þrumur og eldingarÍ gær litu nokkrar flugvélar í heimsókn á Selfossflugvöll. Má kannski segja að veðurskilyrðin hafi hjálpað til að einhverju leiti, en mikið þrumuveður gekk yfir suðurlandsundirlendið um miðjan daginn. Kolsvört skýjin voru allt í kringum Selfoss með tilheyrandi látum. Meðal þeirra sem litu við voru TF-FAA Piper Warrior frá Flugskóla Akureyrar, en nokkrir norðanmenn voru við steggjastörf á Selfossi og nágrenni í gær. TF-KAF leit við og beið af sér skýjin, Steini Tótu á TF-124 kom úr langferð að austan og stefndi norður á Blönduós og Kjartan Sigurðsson kom á Selfoss á síðustu bensíndropunum alla leið austur úr öræfum. Þórir Tryggvason var að vinna í TF-170 og Helgi Sigurðsson mundaði pensilinn. Einar Elíasson fór nokkra skreppi á TF-PJE og Stefán leit við í turninum. Afslappaður dagur þrátt fyrir óstöðugt loft, fleiri myndir er að finna í myndaalbúminu.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 18.07.2009 17:47Gunnar Þorvaldsson - MinningLátinn er á Akureyri, Gunnar Þorvaldsson rafvirki og fyrrum félagi í Flugklúbbi Selfoss.
Gunnar Þorvaldsson gekk til liðs við Flugklúbb Selfoss, árið 1975. Hann var kjörinn í stjórn hans 1978 sem ritari. Þessu embætti gegndi hann með miklum sóma um áralangt skeið og vann að uppbyggingu Selfossflugvallar og eflingu klúbbsins af óeigingirni og áhuga. Hann stjórnaði og vann að rafvæðingu vallarins og það má með sanni segja að hann eigi heiðurinn af uppsetningu brautaljósa, stefnuvita (NDB) ofl. ásamt þáverandi formanni klúbbsins Jóni I Guðmundssyni. Það var ekki aðeins gríðarlega mikið verk heldur líka stórt framfaramál fyrir Selfossflugvöll. Gunnar var í forystusveit um að koma á legg flugkennslu á Selfossvelli og tók hann sjálfur einkaflugmannspróf og eignaðist tveggja sæta flugvél ásamt öðrum, TF UNG og átti hana í nokkur ár. Gunnar beitti sér mjög fyrir auknu félags- og fræðslustarfi innan klúbbsins, sem er hverju félagi nauðsynlegt. Meðal annars gaf hann veglegan bikar til verðlauna í árlegri lendingakeppni klúbbsins, Pétursbikarnum. Það var mikill missir fyrir klúbbinn þegar Gunnar flutti burt af svæðinu.
Flugklúbbur Selfoss þakkar Gunnari Þorvaldssyni fyrir góð kynni og gott starf fyrir klúbbinn og vottar aðstandendum fyllstu samúð.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 16.07.2009 14:45Framkvæmdir á vallarsvæðinuEins og vegfarendur um Selfossflugvöll hafa tekið eftir síðustu daga, þá er mikið af vinnuvélum á ferðinni um svæðið. Þarna er á ferðinni Rarik að leggja nýja heimtaug á flugvöllinn. Með byggingu nýrra flugskýla eykst raforku þörfin og því ákvað Rarik að fara útí þessa framkvæmd í framhaldi af lagningu strengja um nýtt gámasvæði sem er verið að undirbúa við hlið brautar 05. Sýna þarf sérstaka aðgát þar sem einhvað er af merki hælum í kringum akbrautir að plani og einnig geta ákveðin svæði á planinu verið óslétt þó mest við grasflötina. Einnig er málningarvinna á skýli 3 í fullum gangi og styttist því jafnt og þétt í að sú vinna klárist. Skrifað af Þóri Tryggvasyni 15.07.2009 23:02Flugið 2009Nú er flugblaðið Flugið 2009 í prentun, áætlað er að því verði dreift til áskrifenda um miðjan júlí. Allir áskrifendur fá blaðið sent auk þess sem það verður selt í öllum helstu bókaverslunum landsins Meðal efnis í blaðinu verður: Viðtöl, atvinnuflug, einkaflug, listflug, flugsmíðar, flugnám, flugumferðarstjórn, flugvirkjun og margt fleira. Hægt er að panta áskrift á www.flugid.is Við hvetjum alla flugáhugamenn til að næla sér í eintak, því hér er um frábært framtak að ræða.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 13.07.2009 20:21Flughátíð á Hellu að bakiUm síðustu helgi hélt Flugmálafélag Íslands sína árlegu flugkomu á Helluflugvelli. Er þetta í níunda sinn sem hátíðin fer fram hjá þeim nágrönnum okkar á Hellu. Mikið var um dýrðir þó minna hafi farið fyrir skipulegri dagskrá þetta árið. Þarna mátti sjá svifflugur, þyrlur , fjöldann allan af hinum ýmsu einkaflugvélum og fisflugvélum, ásamt svifvængjum. Fallhlífastökkvarar sáu svo um að halda fólki við efnið en þeir stukku fram á nætur og voru komnir af stað aftur eldsnemma að morgni. Fáir njóta meiri vinsælda á svona hátíðum en Páll nokkur Sveinsson en svo nefnist hin sívinsæla DC-3 flugvél sem notuð var við áburðardreifingu og uppgræðslu landsins til fjölda ára. Fjölmargir nýttu sér það að mæta þarna með fjölskyldur sínar og tjalda á flugvellinum, en þannig skapast mjög skemmtileg stemmning, en varlega áætlað er að um 40 tjöld hafi verið á svæðinu. Fjölmargir félagar úr Flugklúbbi Selfoss sáust á svæðinu, sumir stoppuðu lengur á meðan aðrir létu sér það nægja að líta við. Ritstjóri Flugklúbbsins var á staðnum alla helgina og tók mikið af myndum eru komnar inní myndaalbúmið.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 06.07.2009 09:11Ný vefmyndavél í BakkafjöruSiglingastofnun hefur sett upp nýja vefmyndavél sem horfir yfir framkvæmdirnar við Landeyjarhöfn og Bakkafjöru. Þarna gæti verið komið gott tækifæri fyrir flugmenn til að meta enn betur ástandið á flugleiðinni til Vestmannaeyja. Nýja vélin sendir mynd á einnar mínútu fresti. Hægt er að sjá myndir frá vélinni á vef Siglingastofnunnar og með því að smella á myndina fæst önnur stærri. Skrifað af Þóri Tryggvasyni 05.07.2009 09:07Flughátíð á HelluFlughátíð Flugmálafélags Íslands verður haldið á Hellu helgina 10.-12. júli nk. Þessi árlega hátíð hefur iðulega verið vel sótt og vinsæl fjölskylduskemmtun meðal flugmanna hverskonar. Allir áhugamenn flugsporta eru velkomnir. Ódýr skemmtun fyrir alla fjölskylduna, grillveisla, flugdrekar fyrir börnin, varðeldur, kvöldvaka, flugsýning, o.fl. Mætum öll og skemmtum okkur innan um hitt flugdellufólkið! Skrifað af Þóri Tryggvasyni Flettingar í dag: 200 Gestir í dag: 115 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474782 Samtals gestir: 104462 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31 |