|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Færslur: 2009 Júní30.06.2009 00:50Frétt af mbl.isVont að fljúga í vályndu veðri Eftirfarandi frétt er tekin af mbl.is Flugmaður á lítill flugvél (félagi okkar Hjörtur?) sem var á leið til Ísafjarðar í kvöld ákvað að lenda á Djúpveginum við bæinn Ögur í stað þess að fara alla leið á leiðarenda sökum veðurs. Svartaþoka er nú við Ísafjarðardjúp og því öll flugskilyrði afar slæm. Flugmaðurinn tók því þá ákvörðun að leita að vegi og lenti vél sinni mjúklega skammt frá bænum Ögri. Var hvorki hann né vélin í neinni hættu. Amar því ekkert að flugmanninum sem mun ætla að láta fyrirberast í vél sinni í nótt. Er svo ætlunin að halda ferðinni áfram í morgunsárið þegar þoku léttir.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 23.06.2009 14:18Veðurstöðin komin í lagEftir langa mæðu virðist sem veðurstöðin á flugvellinum sé lokins komin í lag en hún er búin að vera biluð síðan í vetur en þá bilaði vindáttamælirinn. Búið er að bíða eftir varahlut síðan í maí og þegar til kom þá var viðkomandi varahlutur ekki með í sendingunni. Var því skipt út einingunni í heild sinni, þeas vindmæli hlutanum. Var hann settur upp í dag og er ekki annað að sjá en allt virki eðlilega.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 23.06.2009 14:09Undirbúningur fyrir málunUm síðustu helgi, unnu þeir Hannes Garðarsson og Helgi Sigurðsson að því að undirbúa þakið á skýli 3 fyrir málningu. Þakið var háþrýstiþvegið í bak og fyrir og kom á daginn að ekki veitti af.
Hér má sjá þá félaga við þvottastörfin. Haraldur fylgist grannt með Skrifað af Þóri Tryggvasyni 17.06.2009 19:00Vel heppnaður þjóðhátíðardagurÞrátt fyrir að veðurguðirnir hafi gusað úr sér hressilegri vætu um hádegið, þá rifu þeir af sér kl 13 og hið árvissa útsýnisflug þetta árið varð að veruleika. Strax myndaðist góð stemmning og fólk streymdi að. Fjórar flugvélar tóku þátt að þessu sinni en þær voru TF-GJA, TF-HAL-TF-EOS og TF-PJE og fóru rúmlega 120 manns í flugtúr. Veðrið reyndist verða hið ákjósanlegasta, hægur vindur og glampandi sól allan tímann. Sú nýbreytni var núna, að hægt var að kaupa kaffi, gos og prins póló á góðu verði meðan beðið var og mæltist það vel fyrir. Síðustu farþegarnir fóru í lofið klukkan að verða fimm. Stefán Jóhannsson stóð vaktina í turninum. Frábær dagur að baki. Nokkar myndir frá deginum eru komnar í myndaalbúmið.
Skrifað af Þóri Tryggvasyni 17.06.2009 09:5017. júní 2009
Skrifað af ritstjóra 06.06.2009 18:22Flottur dagur á SelfossflugvelliVeðrið lék við hvern sinn fingur í dag á Selfossflugvelli sem annarsstaðar. Þó nokkur traffík var á hlaðinu og góðir gestir litu við, svo sem Otto Tynes á TF-KAJ og fleiri. Ólafur Jónsson lét sjá sig á hlaðinu, og beið hans ærið verkefni að dusta rykið af TF-118. Einnig var stór áfangi í kringum TF-GIN en hún er búin að vera í uppgerð í 10 ár hjá þeim Kára, Gunnari, Guðjóni og Kristbirni. Það gerðist svo loks í dag sem vængirnir fóru aftur á búkinn eftir margra ára hlé. Vonandi tekst þeim félögum að koma henni í loftið í sumar. Nokkrar myndir voru teknar í dag og eru þær komnar í myndalbúmið.
Skrifað af ritstjóra 06.06.2009 13:45Braut 15/33Í vikunni var sáð grasfræi og áburður borinn á braut 15/33 á Selfossflugvelli. (Brautin sem liggur frá Eyrabakkavegi og niður að Ölfusá ) Til að hlífa brautinni verða snertilendingar á henni bannaðar í sumar og mælst er til þess að braut 05/23 sé notuð alltaf þegar það er hægt. Braut 15/33 er ekki lokuð í þeim tilvikum sem flugmenn telja öruggara að nota hana en endilega notið hina brautina alltaf þegar það er hægt. Skrifað af ritstjóra 02.06.2009 09:25Sáning í brautirÍ gærkvöldi hófst vinna við að dreifa grasfræi og áburði í braut 15/33 á Selfossflugvelli. Búið var að fá til verksins tækjabúnað úr ýmsum áttum. Byrjað var á að slóðadraga alla brautina til að jafna yfirborðið og einnig til að opna jarðveginn fyrir grasfræin. Því næst var blandað í dreifarann áburði og fræi eftir kúnstarinnar reglum. Tók þessi vinna um 4 tíma og að henni lokinn hófst vinna við völtun, sem mun klárast í dag/kvöld. Leitað var til helstu gras sérfræðinga sýslunnar með val á grastegund og fyrir valinu varð gras sem mun verða lágsprottið en mjög þétt. Myndir sem Þórir Tryggvason tók frá kvöldinu eru komnar inní myndaalbúmið.
Skrifað af ritstjóra 02.06.2009 09:13Nýtt flugskýliÁ dögunum var endanlega samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir flugvallarsvæðið. Mun þetta gjörbylta þeirri stöðu sem klúbburinn hefur verið í hingað til. Einn af félögum okkar, Kári Jónsson (TF-FFK) reið á vaðið og hefur hafið byggingu á 280m2 flugskýli. Húsið verður innflutt og ætlunin er að það verði fullbúið með haustinu. Gaman verður að fylgjast með byggingunni í sumar.
Skrifað af ritstjóra 02.06.2009 09:10Bensín húsÁ dögunum hófst Einar Elíasson handa við smíði á nýju bensínhúsi. Ekki tók verkið langan tíma, því skömmu síðar var húsið tilbúið. Búið er að setja það niður á sinn stað, en það stendur á stéttinni við bensíndælunaog er hið reiulegasta. Verður þetta til mikillar hagræðingar þar sem ekki þarf þá lengur að fara inní brúna húsið eftir bók og lykli. Mun ganga sami lykill að flugstöðinni og bensín húsinu. Eina sem vantar núna er gott nafn á bygginguna og er hér með auglýst eftir tillögum að nafngift. Vakin er sérstök athygli flugmanna á því að hæð hússins er vel rúmlega 2 metrar og því hætta á að reka vængi í húsið.
Skrifað af ritstjóra 01.06.2009 17:00Aðalfundur FÍEAðalfundur Félags Íslenskra Einkaflugmanna verður haldinn í félagsheimili FÍE miðvikudaginn 03. júní kl. 20:00. Dagskrá fundarins verður samkv. lögum félagsins. Kosning fundarstjóra Kosning fundarritara Skýrsla stjórnar Reikningar félagsins lagðir fram Lagabreytingar Kosning stjórnar og varastjórnar Kosning endurskoðenda / skoðunarmanna Ákvörðun árgjalds Önnur mál Fundi slitið Kaffi og meðlæti. Stjórn FÍE. aopa@aopa.is www.aopa.is Skrifað af ritstjóra
Flettingar í dag: 112 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 471 Gestir í gær: 77 Samtals flettingar: 509531 Samtals gestir: 112930 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 12:40:43 |
Veðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|