|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2009 Maí29.05.2009 18:42Vel heppnaðir vinnudagarVinnudagar vorsins eru að baki og má segja þeir hafi tekist mjög vel því flest þau verkefni sem stefnt var að, náðist að vinna. Byrjað var á föstudagskvöldi og verið var að frameftir degi á sunnudeginum. Fánaborg var sett niður, unnið var við málun á flugstöð og skýli 2, hattar á braut 33/15 yfirfarnir, fánastöng máluð og flutningur undirbúinn, plan við skýli 2 undirbúið, ásamt ýmsum öðrum verkefnum. Nokkrar myndir frá deginum eru komnar inní myndaalbúmið.
Skrifað af ritstjóra 12.05.2009 23:29Vinnuhelgi framundanJæja kæru félagar, nú er komið að hinni árlegu vinnuhelgi á flugvellinum. Stefnt er á að byrja á föstudagskvöldinu og vera síðan allan laugardaginn og frameftir degi á sunnudag. Búið er að setja saman verkefnalista með því sem markmiðið er að gera og nú vantar okkur að sjá vinnufúsar hendur á svæðinu. Spáin er góð fyrir helgina og ætti að vera hægt að taka upp pensil og fegra og snyrta. Gaman væri að sem flestir sæu sér fært að mæta, amk einhvern tíma, það munar um allt. Búið verður að undirbúa sem mest þannig að hægt verði að framkvæma sem mest. Ekki þarf að spyrja að því, hvað nokkur smáverk geta bætt ásýnd vallarsvæðisins mikið. Munum að margar hendur vinna létt verk. Fjölmennum og eigum skemmtilegan tíma saman á flugvellinum okkar. Með kveðju Stjórnin Skrifað af ritstjóra 05.05.2009 22:57Völlurinn valtaðurÞað er ekki slegið slöku við á Selfossflugvelli þessa dagana. í gær hófst vinna við að valta allar brautir enda tíðarfarið einkar gott til völtunar. Sigurður Karlsson og Helgi Sigurðsson komu því í kring að stór valtari fékkst á svæðið og tóku þá nokkrir félagar til óspilltra málanna. Haraldur Eldon týndi flest það grjót úr brautum sem hægt var og svo tóku þeir Stefán Jóhannsson, Helgi Sigurðsson og Þórir Tryggvason sig til og völtuðu allar brautir fram á nótt og aftur í morgunsárið í dag. Er völlurinn nú hinn sléttasti og verður það vonandi fram á sumarið. Nokkar myndir voru teknar við þetta tækifæri sem eru komnar inn í myndaalbúmið. Þær tók Aron Karl Þórisson tilvonandi félagsmaður, en hann er á ellefta ári og fer stundum hring með pabba sínum í TF-170.
Skrifað af ritstjóra 02.05.2009 23:57Fínasti kaffisopiÞað var góður hópur félaga sem mætti í kaffið í dag á flugvellinum. Þetta er í annað skiptið á þessu ári þar sem hellt er skipulega á könnuna en stefnan er að þetta sé fyrsti laugardagur í hverjum mánuði. Margir höfðingjar litu við og fengu sér sopa í dag og tóku sumir ungviðið með sér. Stefnt er á kaffi og meðlæti í næsta mánuði, vegna fjölda áskoranna sem komu fram í dag. Nokkrar myndir frá deginum eru komnar inn í myndaalbúmið.
Skrifað af ritstjóra Flettingar í dag: 200 Gestir í dag: 115 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474782 Samtals gestir: 104462 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31 |