Flugklúbbur Selfoss

1974

Vafraðu um


Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar

Færslur: 2009 Apríl

29.04.2009 21:46

Skemmtilegt myndband

Rakst á skemmtilegt myndband í dag, sem sýnir þegar 9 svifflugur eru dregnar á loft í einu af einni flugvél.  Gengur alveg ótrúlega vel fyrir sig miðað við flækjuna sem gæti orðið úr þessu. Kíkið á þetta..   Minnum aftur á laugardagskaffið, næsta laugardag, sjá frétt hér fyrir neðan.
 

27.04.2009 23:15

Laugardagskaffi

Kæru félagar.  Nú er hugmyndin að endurtaka leikinn frá því í síðasta mánuði og hittast í laugardagskaffi á flugvellinum, næstkomandi laugardag 2. maí, um kaffileitið.  Síðast var góð mæting og má búast við enn betri mætingu núna. Gott tækifæri til að hitta félagana yfir kaffibolla og ræða málin.  Framundan er líflegt sumar og ljóst er, að úr nægu verður að moða fyrir flugáhugamenn á Íslandi þetta sumarið.



23.04.2009 11:52

Sigurður fær heimsókn

Laugardaginn 18. apríl síðastliðinn, komu félagar úr Karlakór Selfoss í heimsókn í flugskýlið til Sigurðar Karlssonar.  Kórinn söng nokkur lög að sjálfsögðu og bornar voru fram veitingar að hætti Sigurðar.  Gísli Jónsson formaður Karlakórsins sæmdi Sigurð merki Karlakórasambandsins.  Einar Elíasson tók nokkrar myndir af þessu tilefni sem eru komnar inní myndaalbúmið.


Gísli nælir merkinu góða í Sigurð Karlsson

16.04.2009 19:48

Vorið að koma

Töluverð umferð var um Selfossflugvöll í veðurblíðunni í dag, m.a. bóndi úr Grímsnesinu að sinna nauðsynlegu viðhaldi á vélum sínum. Spekingar á vellinum fylgdust með og gáfu góð ráð.


Spekingarnir frá vinstri: Björn Rúriksson, Jón Guðbrandsson og Einar Elíasson.
Á milli Björns og Jóns, sést glitta í Þorstein "bónda" Magnússon.



03.04.2009 23:56

Nýtt deiliskipulag fyrir flugvallarsvæðið

Sveitarfélagið Árborg hefur nú auglýst gildistöku á nýju deiliskipulagi fyrir flugvallarsvæðið. Svæðið fyrir flugskýli og flugstöð er samtals tæpir 5 hektarar og gert ráð fyrir 6 nýjum byggingarreitum á svæðinu sem hver um sig getur rúmað allt að 6 skýli, eftir því hvað menn vilja byggja stórt. Samkvæmt skipulaginu verður flugstöðin á sínum stað en akbrautir og flugplan færist til. Þetta eru að sjálfsögðu ákaflega góðar fréttir og nú er ekkert því til fyrirstöðu að þeir sem vilja byggja geti fljótlega hafist handa. Gert er ráð fyrir að lóðir verði auglýstar til umsóknar á næstu vikum.

Svona mun svæði flugvallarins líta út skv ný samþykktu deiliskipulagi.

    Flettingar í dag: 206
    Gestir í dag: 119
    Flettingar í gær: 331
    Gestir í gær: 151
    Samtals flettingar: 474788
    Samtals gestir: 104466
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:48:01