|
Flugklúbbur Selfoss 1974 |
|
Vafraðu umVeðrið á Selfossflugvelli Ritstjóri heimasíðu: Þórir Tryggvason, sími 892 3957 Ábyrgðarmaður: Helgi Sigurðsson, sími 896 3406 Hafa samband: akk@simnet.is Tenglar
Eldra efni
|
Færslur: 2009 Mars19.03.2009 23:40Aðalfundur 2008-2009Aðalfundur Flugklúbbs Selfoss var haldinn í kvöld, í húsakynnum SET hf á Selfossi. Dagskrá var skv félagslögum og fór Helgi Sigurðsson formaður yfir liðið starfsár og það sem framundan er.
Skrifað af ritstjóra 18.03.2009 16:22Minnum á aðalfundMinnum á aðalfund Flugklúbbs Selfoss, sem haldinn verður fimmtudagskvöldið 19. mars 2009 kl 20 í húsakynnum SET á selfossi. Sjá dagskrá hér fyrir neðan. Skrifað af ritstjóra 05.03.2009 14:11121,5 MHz / 406 MHz.121,5 MHz Neyðarsendar og endalok þeirra. Opinberlega verður hætt að hlusta á 121,5 MHz neyðarsendana 01. febrúar 2009, hér á Íslandi verður þó áfram hlustun amk til að byrja með sem virkar í nágrenni Reykjavíkur, inn á Suðurlands undirlendið og upp í Borgarfjörð. Einnig verður hlusutn í Eyjafirði. Aðrir staðir á landinu detta út en flugvélar munu áfram hlusta á 121,5 MHz. Undanþága verður með einkaflugvélar á Íslandi sem voru skráðar fyrir 01.07.2008 að taka upp 406 MHz til 01.02.2010. Frétt fengin af www.flugfrettir.is Skrifað af ritstjóra 03.03.2009 15:59Aðalfundur Flugklúbbs SelfossAðalfundur flugklúbbsins verður haldinn í húsakynnum Set á Selfossi fimmtudaginn 19. mars n.k. kl. 20. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum klúbbsins. Takið kvöldið frá og mætum vel. Stjórnin. Skrifað af ritstjóra 01.03.2009 14:17Nýr fáni Flugklúbbs SelfossFélagi okkar til fjölda ára, Sigurður Karlsson (TF-HAL) kom færandi hendi á flugvöllinn í gær, eins og svo oft áður. Sigurður færði klúbbnum forláta fána að gjöf sem kemur til með að koma að góðum notum við ýmsar uppákomur klúbbsins, ss fundi og árshátíðar. Fáninn verður vígður á næsta aðalfundi klúbbsins sem haldinn verður nú í mars.
Skrifað af ritstjóra Flettingar í dag: 200 Gestir í dag: 115 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 151 Samtals flettingar: 474782 Samtals gestir: 104462 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 20:24:31 |