Flugklúbbur Selfoss

1974

Vafraðu um


Veðrið á Selfossflugvelli


Ritstjóri heimasíðu:
Þórir Tryggvason, sími 892 3957
Ábyrgðarmaður:
Helgi Sigurðsson, sími 896 3406
Hafa samband:
akk@simnet.is

Tenglar

Færslur: 2009 Febrúar

19.02.2009 12:46

Breytingar í Vestmannaeyjum

Breytingar verða gerðar á rekstri flugvallarins í Vestmannaeyjum í apríl. Í stað þess að flugumferðarstjórar stýri umferð munu flugradíómenn veita flugupplýsingar. Ábyrgð á aðskilnaði flugvéla, sem áður var í höndum flugumferðar­stjóra, færist nú alfarið yfir á flugmenn, að því er fram kemur á vef Frétta í Vestmannaeyjum.

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýs­ingafulltrúi Flugstoða, segir í samtali við Fréttir að flugum­ferðar­stjóri, sem starfar áfram í Vestmannaeyjum, mun starfa sam­kvæmt nýju þjónustustigi. Flugradíómaður gefi sömu upplýsingar um veður, ástand brauta og aðra öryggisþætti og flugumferðarstjóri. Hann beri þó ekki ábyrgð á aðskilnaði flugvél­anna þó hann gefi flugmönnum upplýsingar um aðra flugumferð í nágrenni vallarins og á brautum.

"Í Vestmannaeyjum hefur verið blandað þjónustustig, flugumferðar­stjórn á daginn og flugupplýsinga­þjónusta á kvöldin og nóttinni. Flestir flugvellir úti á landi eru með flugradíómenn svo sem flugvöll­urinn á Egilsstöðum. Einu flugvell­irnir með flugumferðarstjóra eru í Reykjavík, á Akureyri og í Kefla­vík," sagði Hjördís.

Breytingin er gerð í sparnaðarskyni og hefur hún staðið til í nokkur ár. "Þetta fyrirkomulag er mjög algengt víðsvegar í heiminum. Viðmiðunarmörk um hvenær nauðsynlegt er að breyta úr flugupplýsingaþjónustu í flug­um­ferðarþjónustu miðast við flug­umferð sem er þá meiri en um Vestmannaeyjaflugvöll í þeim lönd­um, sem við berum okkur saman við.
Ég vil taka fram að á næstu þjóðhátíð verða flugumferðarstjórar í turninum," sagði Hjördís.
Þetta kemur fram á mbl.is


Flugstöðin í Vestmannaeyjum. Mynd af mbl.is


15.02.2009 14:22

Nýjar vefmyndavélar

Nú er búið að bæta við tenglum á 3 nýjar vefmyndavélar,  2 þeirra eru í Múlakoti í Fljótshlíð og ein er á Blönduósflugvelli.   Einnig er komin upp veðurstöð í Múlakoti, í líkingu við þá sem er á Selfossflugvelli. Tengil á hana er að finna í tenglasafninu hér til hliðar, undir "veðurupplýsingar".  Alltaf gaman þegar svona nýjungar líta dagsins ljós sem geta hjálpað flugfólki við að plana flugtúrana.   Á Selfossflugvelli er snjóinn um það bil að taka upp, ásamt klakanum, en brautirnar eru frekar blautar og mjúkar, svo rétt er að fara gætilega, amk á meðan mesta bleytan er að sjatna úr þeim.


    Flettingar í dag: 197
    Gestir í dag: 113
    Flettingar í gær: 331
    Gestir í gær: 151
    Samtals flettingar: 474779
    Samtals gestir: 104460
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:51:40