Fréttir

5.9.2010

Árshátíð 2010

TIL FÉLAGA Í FLUGKLÚBBI SELFOSS

Árshátíð Flugklúbbs Selfoss 2010 verður haldin í flugskýli 1 á Selfossflugvelli föstudaginn 24. september n.k. kl. 19:30.  Glæsilegur kvöldverður, myndasýning, skemmtiatriði, verðlaunaafhendingar o.fl. Takið kvöldið frá fyrir þennan viðburð sem enginn má missa af. Gestir eru  velkomnir. Nánari upplýsingar verða sendar þegar nær dregur....

STJÓRNIN  


Skrifað 5.9.2010 kl. 11:49 af Þóri Tryggvasyni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.9.2010

Ný NOTAM, Braut 05/23 opin á ný

Þau frábæru tíðindi voru að berast að búið er að fella úr gildi lokun á braut 05/23 á Selfossflugvelli.
Þó ber að benda sérstaklega á neðangreind 2 NOTAM, þar sem kemur fram að búið er að stytta báðar brautir, þeas 05/23   OG 33/15.   Einnig eru brautarljós á 05/23 ekki virk sem stendur.
Flugmenn eru hvattir til að kynna sér vel NOTAM skeytin:

C-NOTAM nr. 0125/10 Selfoss BISF brautarlengdir.

NOTAM nr. C 0125/10
A) Staður: Selfoss BISF
B) Gildir frá: 3. september 2010 kl. 12:30
C) Gildir til: 3. desember 2010 kl. 15:00
D)
E) Flugbrautir hafa verið styttar:
Braut 05/23 er 798 metrar. THR-05 óbreyttur. Nýr THR-23 63°55'50,60096''N 021°02'07,55154''W
Braut 15/33 er 794 metrar. Nýr THR-15 63°55'58,70485''N 021°02'52,99918''W. Nýr THR-33 63°55'42,15678''N 021°02'08,50719''W

Sjá AD 4.2-41.



C-NOTAM nr. 0126/10 Selfoss BISF brautarljós.

NOTAM nr. C 0126/10
A) Staður: Selfoss BISF
B) Gildir frá: 3. september 2010 kl. 12:32
C) Gildir til: 3. desember 2010 kl. 15:00
D)
E) Braut 05/23. Brautarljós óstarfhæf.
Sjá AIP AD 4.2-41.

Skrifað 3.9.2010 kl. 13:23 af Þóri Tryggvasyni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.9.2010

Frestun á dagskrá

Búið er að ákveða að fresta Flugrallýi og þar með Pétursbikar til laugardagsins 11. september vegna slæmrar veðurspár.

Skrifað 3.9.2010 kl. 10:23 af Þóri Tryggvasyni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

31.8.2010

Flugrallý og lendingarkeppni 2010

Flugrallý og lendingarkeppni verða haldin laugardaginn 4. september 2010 á
Selfossflugvelli. Keppt er samkvæmt reglum FAI - Alþjóða flugmálafélagsins.

Reglurnar og refsistigin er hægt að sækja og lesa á vef FAI
http://www.fai.org/general_aviation/system/files/gac_airrally2010.pdf

GPS tæki verður í hverri keppnisvél sem skráir flugferilinn á hverri sekúndu. Stigin eru reiknuð síðan samkvæmt því. Stig af tveimur af lendingum í lendingarkeppninni eru einnig tekin í heildarstigafjöldann.

Keppnin er liðakeppni því í hverri vél er gert ráð fyrir flugmanni og flugleiðsögumanni (Navigator).Keppnin felst í því að keppendur fá upplýsingar um leið sem hefur 10
leggi. Fljúga þarf rétt miðað við áætlaðan hraða og eiga keppendur að fara yfir hvern beygjupunkt á ákveðnum tíma en fá refsistig fyrir hverja sekúndu sem er frávik frá flugáætluninni (leyft frávik án refsistiga er ±2 sekúndur).

Keppendur hafa myndir af öllum beygjupunktum og þurfa að merkja hvort myndin sé
rétt eða röng. Eins hafa keppendur 8 myndir af fyrrihluta og 8 af seinnihluta
leiðarinnar. Keppendur eiga að staðsetja myndirnar á flugferlinum.
Notaðar verða stafrænar loftmyndir í myndahluta keppninnar.
GPS tæki verða sett í hverja vél og skráir tækið staðsetningu á hverri sekúndu.
Flugferillinn er síðan skoðaður og notaður til að reikna refsistigin.
Ekki má nota GPS í keppninni og verður límt yfir skjáinn á keppnistækinu sem skráir ferilinn og eins límt yfir skjáinn ef GPS tæki er í flugvélinni.
Keppendur eru hvattir til að koma með eigið eða útvega sér að láni Garmin GPS tæki til að nota í keppninni (hand/göngu-tæki henta best). Keppnisstjórn lánar þeim
keppendum sem ekki hafa GPS tæki, en best ef keppendur koma með sjálfir.
Lendingarkeppni hefst eftir að síðasta vél er lent úr flugleiðsöguhluta keppninnar.
Tvær lendingar úr keppninni um Pétursbikarinn eru notaðar í Íslandsmótinu í vélflugi.
Hægt er að taka þátt í keppninni um Pétursbikarinn án þess að taka þátt í
Íslandsmótinu.
Þátttakendur skrái sig ekki síðar en á fimmtudag fyrir kl. 20.00 með tölvupósti eða
símtali við Hörð Sverrisson (
hordur@live.com s:898 1894)
eða Ágúst Guðmundsson (
ag@teigar.net s:897 9882)
Ekki er víst að skráningar eftir þennan tíma verði teknar gildar.

Áhorfendavæn keppni

Keppnin er sérlega áhorfendavæn og notuð er nýjasta tækni til þess.

Áhorfendur fylgjast með hverri vél frá byrjun og til loka flugsins. Í samvinnu við SAGASystem á Íslandi (www.sagasystem.is) verður tæki í hverri flugvél sem sendir staðsetninguna á hverri sekúndu.

Staðsetningin er síðan sýnd á stórum skjá í áhorfendasal á Selfossflugvelli. Áhorfendur sjá hvar allar flugvélarnar eru staðsettar á hverjum tíma og geta því fylgst með hvernig þeim gengur í keppninni á leiðinni.  Áhorfendur hafa því betri yfirsýn yfir keppnina en keppendur sjálfir.

Hver keppandi má hafa með sér aðstoðarmann (Navigator), þannig að það mega vera 2 í vélinni. (Er í raun liðakeppni, en má vera 1 í liði )

Keppendur ákveða flughraða á leiðinni sem er áætluð um 100NM sem er um 200km.

Minnsti hraði sem má nota (fyrir flugáætlun) er 60Kts (~110km/klst)

Flogið er 9 leggi með CheckPoint (CP) á beygjupunktum
Upphafspunktur er StartPoint (SP) og lokapunktur er FinalPoint (FP)
Keppendur fá flugtakstíma og tölvugerða flugáætlun fyrir þann hraða þeir hafa valið.
Hægasta vél fer fyrst og sú hraðasta síðast. Flugplönin eru tímasett þannig að allar vélar komi til lendingar með jöfnu millibili (áætlað um 5 mínútna millibili).
30 mínútum fyrir flugtak fá keppendur umslag með keppnisgögnum

Keppnisgögn eru:

o Tölvureiknað flugplan miðað við þann flugtakstíma og flughraða fyrir viðkomandi keppanda með áætluðum vindstefnu og vindstyrk.
o Myndir af beygjupunktum CP1-CP8 í tveim hlutum
o Kort af svæðinu sem flogið er um.
o Myndir merktar með bókstöfum A til P.
o Svarblað til að skila niðurstöðum úr fluginu
o Keppendur geta skoðað kort á keppnisstað þar sem punktarnir CP1-CP8 hafa verið merktir inná
o Keppendur teikna leiðina á sitt kort (keppendur geta sett inn tímamerki fyrir hverja mínútu á leiðinni)
o Flugtak er á ákveðnum tíma (±60sek án refsistiga)
o Flogið er yfir SP og síðan alla CP og að lokum FP (reiknaður tími ±2sek án refsistiga fyrir alla punkta miðað við tölvureiknað plan)
o Hver punktur er í raun hlið sem er 1,0NM að breidd með punktinn á miðri línunni hornrétt miðað við aðflugsstefnu að punktinum (refsistig ef utan marka)
o Fyrir hvern CP punkt er mynd merkt honum. Merkja á svarblað hvort myndin sé rétt eða röng (refsistig fyrir rangt svar).
o Ekki má beygja meira en 90° frá beinni flugstefnu milli punkta (refsistig). Það gildir þó ekki í 45sek eftir að farið er yfir punkt (CP) og stefnubreyting er tekin að næsta punkti (CP)
o Á leiðinni frá SP að punkti CP4 eru myndir A-H sem keppendur verða að staðsetja rétt á flugleiðinni (fjarlægð í NM frá síðasta CP). Myndirnar eru ekki í réttri röð. (refsistig fyrir rangt staðsetta mynd ef lengra en ±0,5NM frá réttri staðsetningu).
o Á leið frá CP4 að FP eru myndir I-P sem keppendur verða að staðsetja með sama hætti (annars refsistig).
o Eftir að flogið er yfir FP er lent.
o Keppendur hafa síðan 15 mínútur eftir lendingartíma til að ganga frá gögnum (inni í flugvél án samskipta við aðra) sem er þá skilað til mótsstjórnar.
o Auk þess tekur mótsstjórn GPS tæki sem sett var í flugvélina á meðan fluginu stóð og les mótsstjórn úr GPS tækinu allt flugið. Flugið er skráð með 1sek fresti.
o Síðasti hluti er svo lendingarkeppni (refsistig fyrir lendingar utan ramma eftir fjarlægð frá marki).

Dagskrá:

 9.00 Kaffi á Selfossflugvelli
10.00 Flugfundur þar sem farið er yfirkeppnina og keppnisreglur með keppendum
11.03 Fyrsta vél í loftið
13.20 Síðasta vél í loftið
13.30 Fyrsta vél kemur til lendingar
14.30 Síðasta vél kemur til lendingar
15.00 Lendingarkeppni og keppni um Pétursbikarinn
16.00 Keppni lokið

Skrifað 31.8.2010 kl. 22:04 af Þóri Tryggvasyni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.8.2010

Flugrallý og Pétursbikarinn

Þann 4. september er fyrirhugað að halda Íslandsmeistaramótið í flugrallý á Selfossflugvelli. Sama dag, verður einnig árleg lendingarkeppni flugklúbbs Selfoss sem nefnist Pétursbikarinn.   Nánari upplýsingar þegar nær dregur.  Ath breytta dagsetningu. Takið einnig frá þann 24. september en þá verður hin sívinsæla árshátíð Flugklúbbsins.

Skrifað 23.8.2010 kl. 13:00 af Þóri Tryggvasyni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.8.2010

Framkvæmdir á vallarsvæðinu

Skoða nánar

2.8.2010

Múlakot að baki

Skoða nánar

30.7.2010

Flugbraut 05/23 lokuð!

Skoða nánar

29.7.2010

Athygli vakin á.....

Skoða nánar

28.7.2010

Frétt af Sunnlenska.is

Skoða nánar

26.7.2010

Múlakot 2010

Skoða nánar

16.7.2010

Flúðir

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 129
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 343
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 293647
Samtals gestir: 58013
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 14:39:52